Alþjóðleg ráðstefna um meðferð og aðbúnað hrossa
09.05.2011
Alþjóðlega NJF-ráðstefnan "Housing and management of horses in Nordic and Baltic climate" verður haldin á Hótel Loftleiðum dagana 6. og 7. júní nk. Ráðstefnan er ætluð öllu áhugafólki um hross og hestamennsku.
Markmið ráðstefnunnar er að draga saman nýjustu rannsóknarniðurstöður og leiðbeiningar varðandi meðferð hrossa, bæði innan- sem utanhúss, með sérstaka áherslu á nærumhverfi hrossa og manna.
Fagsvið ráðstefnunnar verða fjölbreytt og spanna vítt svið. Sjá dagskrá.
Á ráðstefnunni munu margir þekktir sérfræðingar í húsvist og aðbúnaði hrossa halda erindi. Aðalfyrirlesarar eru: dr. Eileen Fabian Wheeler (Háskólanum í Pennsylvaníu, Bandaríkjunum - margir þekkja hana sem höfund bóka um hönnun hesthúsa), dr. Eva Søndergaard (Agro Food Park, Danmörku), dr. Knut Bøe (Náttúruvísindaháskólanum í Noregi) og dr. Michael Ventorp (Landbúnaðarháskólanum í Svíþjóð). Auk þess eru fjölmargir aðrir fyrirlesarar, m.a. helstu sérfræðingar Íslands á sviði atferlis og aðbúnaðar hrossa.
Athygli er vakin á því að íslenskir þátttakendur geta fengið 50% afslátt af ráðstefnugjaldi (borga þá 150 evrur) óski þeir eftir því. Þetta kemur reyndar ekki fram á heimasíðunni, en stjórn ráðstefnunnar tók þessa ákvörðun og mun ráðstefnustjóri hafa samband við alla íslenska þátttakendur og bjóða þessi sérkjör. Viðkomandi skráir sig því eins og um fullt gjald væri að ræða en fær svo afslátt.
Hægt er að skrá sig á vefsíðunni: www.njf.nu eða með því að senda tölvupóst á ráðstefnustjóra (Snorra Sigurðsson, Landbúnaðarháskóla Íslands): snorri@lbhi.is