
Agrómekferð í nóvember
24.09.2016
Í nóvember verður haldin landbúnaðarsýningin Agromek í Herning í Danmörku. Þessi sýning er haldin annað hvert ár og þekkja hana margir Íslendingar enda verið farnar ótal hópferðir á sýninguna undanfarna áratugi. Nú hefur verið ákveðið að slá í eina slíka ferð og að þessu sinni stendur Jötunn fyrir ferðinni.
Farið verður af stað miðvikudaginn 30. nóvember og komið heim á ný sunnudaginn 4. desember. Auk þess að fara á sýninguna verður víða komið við og m.a. farið í heimsóknir til bænda og til ráðgjafafyrirtækisins SEGES (sem er einskonar RML dönsku bændanna) en þar starfar m.a. Snorri Sigurðsson sem er fararstjóri í þessari ferð. Í ferðinni verður fyrst gist í Árósum en svo endað í Kaupmannahöfn. Allar nánari upplýsingar um ferðina má nálgast hjá Jötunn í síma 480-0400 en einnig má smella hér til þess að sjá nánari upplýsingar um ferðina.