Beint í efni

Agrómek 2010 hefst í dag

30.11.2010

Í dag hefst danska landbúnaðarsýningin Agrómek, sem haldin er að venju í Herning á mið-Jótlandi. Að þessu sinni er hópur Íslendinga á sýningunni heldur fámennari en oft áður enda Danmörk með dýrari löndum að sækja heim nú um stundir. Fyrir vikið er Agrómekferðin í ár sett saman með nokkuð öðrum hætti en oft áður og heimsóknirnar fjölbreyttari. Þannig verður í ár farið í heimsókn til slátrara,

í bændaskóla, til bónda með hjartardýr, til sauðfjárbónda, á búgarð með íslensk verðlaunahross, í fyrirtæki með hreinsiefni fyrir landbúnað, auk að sjálfsögðu kúabænda.

 

Sýningin í ár er byggð upp með svipuðum hætti og fyrri árin, en þetta er í fyrsta skipti í langan tíma sem sýningin er ekki haldin í janúar.

 

Hægt er að fræðast um sýninguna með því að skoða heimasíðu hennar á: www.agromek.dk