
Afurðastöðvaverð ytra á fleygiferð
02.10.2017
Undanfarið hefur heimsmarkaðsverð mjólkurvara verið all stöðugt, m.a. vegna stöðugrar eftirspurnar eftir mjólkurfitu. Erlendis fylgir afurðastöðvaverð yfirleitt í kjölfar hækkunar á heimsmarkaðsverði, en þónokkuð síðar þó þar sem afurðastöðvar gera oft framvirka sölusamninga. Verð til bænda hefur þó hækkað nokkuð á árinu og síðustu viku gátu hollenskir kúabændur brosað út í annað eða bæði eftir fréttir frá félaginu þeirra, FrieslandCampina. Félagið tilkynnti um 1,6 krónu hækkun á afurðastöðvaverðinu frá og með 1. október og fá bændur nú 52,3 krónur fyrir kíló meðalmjólkur.
Þetta afurðastöðvaverð, 0,42 evrusent, er töluvert langt fyrir ofan venjulegt framleiðslukostnaðarverð mjólkur í Hollandi og því eru kúabændurnir og eigendur FrieslandCampina væntanlega sáttir við stöðu mála/SS.