Afurðastöðvaverð mjólkur hækkar um 3,25 kr/ltr 1. júlí
22.06.2011
Fréttatilkynning frá Verðlagsnefnd búvara
Verðlagsnefnd búvara hefur tekið sameiginlega ákvörðun um að heildsöluverð á mjólk og mjólkurvörum, sem nefndin verðleggur, hækki 1. júlí n.k. um 4,25%. Þó hækkar smjör um 6,7% og mjólkurduft til iðnaðar um 6%. Á sama tíma hækkar afurðastöðvaverð til bænda um 3,25 kr/ltr mjólkur, þ.e. úr 74,38 kr í 77,63 kr/ltr., eða um 4,4%. Þá hækkaði vinnslu og dreifingarkostnaður mjólkur um liðlega 4,1%. Ástæður þessara verðbreytinga eru vegna launabreytinga og hækkana á aðföngum við búrekstur.