Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Afurðaskýrslur: Hæsta meðalnyt er 8.355 kg

11.11.2011

Niðurstöður afurðaskýrslna nautgriparæktarinnar fyrir októbermánuð hafa nú birst á nautgriparæktarsíðum bondi.is og má skoða þær nánar hér. Þegar yfirlitið var tekið saman höfðu borist skýrslur frá 94% búa sem skráð eru í skýrsluhaldið.

Niðurstöðurnar eru þær helstar að 22.259,5 árskýr mjólkuðu að meðaltali 5.345 kg síðustu 12 mánuðina. Hæsta meðalnyt var í Hraunkoti í Skaftárhreppi 8.355 kg, næsthæstu meðalafurðir voru á Kirkjulæk 2 í Fljótshlíð en þar voru þær 7.936 kg. Þriðja búið í röðinni er í Reykjahlíð á Skeiðum þar sem meðalnytin var 7.917 kg Þetta eru sömu búin og sátu efst í síðasta mánuði, röðin er þó aftur breytt, búin í Reykjahlíð og á Kirkjulæk hafa skipt um sæti.

Nythæsta kýrin síðustu 12 mánuðina var Fríða nr. 117 í Hraunkoti í Skaftárhreppi, nyt hennar á sama tíma var 12.073 kg en hún var í þriðja sæti á þessum lista í síðasta mánuði. Önnur kýrin í röðinni yfir nythæstu kýrnar síðastliðna 12 mánuði var Tíund nr. 279 í Leirulækjarseli í Borgarbyggð, en hún mjólkaði 11.972 kg og hin þriðja var Díana nr. 194 á Seljavöllum í Hornafirði.