Beint í efni

Áfram svimandi hækkanir á kjarnfóðri

01.04.2008

Eftirfarandi fréttatilkynning hefur borist frá Fóðurblöndunni hf.:

 

„Þann 3. apríl 2008 mun allt fóður hjá Fóðurblöndunni hækka um 12-21% vegna mikilla hækkanna á innfluttum hráefnum til fóðurgerðar og vegna gengissigs.
Frá 25. október 2007 hefur gengi evru hækkað um 37,5% og kostnaðarverð á hráefnum til fóðurgerðar hafa hækkað um 10 – 15% í erlendri mynt á sama tíma. 
Verð á fóðri hefur á sama tíma aðeins hækkað um 13%.
Nánari upplýsingar veitir Eyjólfur Sigurðsson framkvæmdarstjóri í síma 570-9800″. 

 

Kunni einhver að halda að þessi frétt sé skrifuð í tilefni dagsins, skal það sérstaklega tekið fram að svo er alls ekki.