Afmælisafsláttur hjá Fóðurblöndunni hf og Bústólpa ehf – 5 kr/kg
09.04.2010
Eftirfarandi fréttatilkynning hefur borist frá Fóðurblöndunni:
Fóðurblandan lækkar fóður um 5 kr pr kg í tilefni af 50 ára afmæli fyrirtækisins.
Í gær þann 8.apríl, við opnun nýrrar verslunar Fóðurblöndunnar á Selfossi, var tilkynnt um að allt fóður sem framleitt er í verksmiðju fyrirtækisins yrði lækkað um 5,0 kr pr kg í tilefni afmælisins. Lækkunin gildir til 16. Apríl 2010.
Bústólpi á Akureyri, dótturfyrirtæki Fóðurblöndunnar, mun einnig bjóða upp á sömu lækkun af sama tilefni.
Nánari upplýsingar veitir Eyjólfur Sigurðsson framkvæmdarstjóri í síma 570-9800.
Landssamband kúabænda færir Fóðurblöndunni bestu árnaðaróskir í tilefni af afmæli fyrirtækisins.