Um BÍ
Búgreinadeildir
Málaflokkar
Til baka
Um Alifuglabændur
Upplýsingar
Kolefnisspor
Til baka
Til baka
Um Hross BÍ
Fræðsla
FHB
Til baka
Um NautBÍ
Upplýsingar
LK
Til baka
Sauðfjárbændur
Upplýsingar
Til baka
Starfið
Stjórnsýsla
Til baka

Aðgerðir til að mæta áhrifum COVID-19 á landbúnað

27.03.2020

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kynnti á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun 15 aðgerðir á sviði landbúnaðar og sjávarútvegs til að bregðast við áhrifum COVID-19 veirunnar á þessar greinar. Markmið aðgerðanna er að lágmarka neikvæð áhrif á íslenskan landbúnað og sjávarútveg til skemmri og lengri tíma, en um leið skapa öfluga viðspyrnu þegar þetta tímabundna ástand er gengið yfir.

Viðbragðsteymi BÍ vegna COVID-19 hefur unnið að sumum þeirra lausna fyrir landbúnaðinn sem ráðherra kynnti í morgun í góðri samvinnu við ráðuneytið. 

Aðgerðirnar sem snerta landbúnað eru eftirfarandi:

  1. Íslensk garðyrkja efld til muna með auknum fjárveitingum
    • Nú standa yfir samningaviðræður stjórnvalda og bænda um endurskoðun búvörusamnings um starfsskilyrði garðyrkjuræktar. Þar er gert ráð fyrir að íslensk garðyrkja verði efld til muna með auknum fjárveitingum og með tilheyrandi fjárfestingum í greininni. Aðgerðin er m.a. fjármögnuð með fjárfestingaátaki ríkisstjórnarinnar á þessu ári. Aukin framleiðsla á íslensku grænmeti er forsenda þess að íslenskir garðyrkjubændur nái að halda í við þá þróun sem aukin neysla grænmetis hefur í för með sér og nái að halda við og auka markaðshlutdeild íslensks grænmetis.
    •  
  2. Aukin þjónusta og ráðgjöf til bænda vegna COVID-19
    • Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið mun í samráði við Bændasamtök Íslands gera bændum kleift að fá fjölþætta ráðgjöf á sviði rekstrar og nýsköpunar til að takast á við þær áskoranir sem nú blasa við vegna COVID-19 og til að tryggja öfluga viðspyrnu þegar að þessu tímabundna ástandi lýkur.
    •  
  3. Tilfærslur á greiðslum samkvæmt gildandi búvörusamningum innan ársins 2020
    • Framkvæmdanefnd búvörusamninga verður falið að leita leiða til að færa til fjármuni í samræmi við gildandi búvörusamninga til að koma sérstaklega til móts við innlenda matvælaframleiðendur sem nú glíma við tímabundna erfiðleika.
    •  
  4. Afurðatjón vegna COVID-19 skráð
    • Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Bændasamtök Íslands og Ráðgjafarþjónusta landbúnaðarins munu vinna saman að því að skrá afurðatjón bænda vegna COVID-19.
    •  
  5. Tryggja greiðslur til einstaklinga sem sinna afleysingarþjónustu fyrir bændur
    • Bændasamtök Íslands hafa sett á fót afleysingaþjónustu til að aðstoða bændur sem ekki geta sinnt búum sínum vegna veikinda af völdum COVID-19. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið vinnur að því í samstarfi við félags- og barnamálaráðuneytið að tryggja greiðslur til þeirra einstaklinga sem sinna þessari þjónustu.
    •  
  6. Mælaborð fyrir landbúnaðinn til að bæta framsetningu gagna um landbúnaðarframleiðsluna, birgðir og framleiðsluspár
    • Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og Bændasamtök Íslands munu vinna að gerð mælaborðs fyrir landbúnaðinn til að bæta framsetningu gagna um landbúnaðarframleiðsluna, birgðir og framleiðsluspár.  Markmiðið er að búa til nokkurs konar mælaborð landbúnaðarins þar sem dregnar eru saman hagtölur sem snerta framleiðsluna og þeim haldið við. Slíkt skiptir máli m.a. til að tryggja fæðuöryggi til lengri og skemmri tíma.
    •  
  7. Óskað eftir liðsinni dýralækna í bakvarðasveit
    • Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Matvælastofnun og Dýralæknafélag Íslands hafa óskað eftir liðsinni dýralækna í bakvarðasveit. Leitað er að fólki sem hefur aðstæður og er reiðubúið að vera á útkallslista dýralækna og getur hlaupið til með skömmum fyrirvara, eftir því sem aðstæður leyfa.
    •  
  8. Ráðstafanir til að stuðla að ræktun iðnaðarhamps hér á landi
    • Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið mun í samstarfi við heilbrigðisráðuneytið gera ráðstafanir til að heimila með skilyrðum ræktun iðnaðarhamps hér á landi til að auka verðmætasköpun í íslenskum landbúnaði.

Aðrar almennar aðgerðir sem ráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi:

  1. Fallið frá áformum um 2,5% hækkun á gjaldskrá Matvælastofnunar til 1. september 2020
    • Fyrirséð er að eftirspurn eftir íslenskum matvælum mun dragast saman á næstu misserum, m.a. í ljósi fækkunar ferðamanna til Íslands, og mun slíkt hafa áhrif á rekstur íslenskra matvælaframleiðenda. Vegna þessa verður fallið frá áformum um 2,5% hækkun á gjaldskrá Matvælastofnunar til 1. september á þessu ári.
    •  
  2. Ráðstafanir til að tryggja áframhaldandi starfsemi fyrirtækja í matvælaframleiðslu vegna samkomubanns o.fl.
    • Hertar kröfur um samkomur fólks, fjarvera starfsmanna frá vinnu vegna sóttkvíar og einangrunar og aðrar ráðstafanir yfirvalda geta haft neikvæð áhrif á fyrirtæki sem sinna íslenskri matvælaframleiðslu. Heilbrigðisráðherra hefur, eftir samráð við sóttvarnalækni, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Matvælastofnun, ákveðið að veita fyrirtækjum í þessum greinum undanþágu frá tilteknum ráðstöfunum að uppfylltum ströngum skilyrðum. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið mun áfram fylgjast með þessari þróun í samvinnu við heilbrigðisyfirvöld og atvinnulífið.

Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að eðli málsins samkvæmt breytist staðan hratt og muni atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið áfram fylgjast náið með þróun mála og grípa til frekari aðgerða sem nauðsynlegar verða.