Aðalfundur settur í dag – í beinni á naut.is
23.03.2012
Aðalfundur Landssambands kúabænda verður settur kl. 10 í dag, föstudaginn 23. mars. Bein útsending verður frá fundinum og hefur hlekk á útsendinguna verið komið fyrir á forsíðu naut.is og hefst hún eins og áður segir kl. 10 árdegis og stendur fram að hádegisverði upp úr kl. 12. Útsendingu verður síðan fram haldið kl. 13 til kl. 16 þegar málum verður skipað til nefnda og nefndarstörf hefjast. Útsendingin hefst síðan aftur kl. 13 á morgun, laugardaginn 24. mars og stendur hún yfir fram til loka fundar./BHB