Aðalfundur og fagþing LK fimmtudaginn 12. mars
09.03.2015
Aðalfundur Landssambands kúabænda verður settur á fimmtudaginn, 12. mars kl. 10.00 í fyrirlestrarsal Íslenskrar erfðagreiningar að Sturlugötu 8 í Reykjavík. Fagþing nautgriparæktarinnar verður svo haldið þar síðar um daginn, frá kl. 13-16. Rétt er að benda á að aðalfundurinn og fagþingið er opið öllu áhugafólki um nautgriparækt. Dagskrá morgundagsins er eftirfarandi:
Kl. 10:00 Fundarsetning, kosning starfsmanna fundarins, kjörbréfa- og uppstillingarnefndar
Kl. 10:15 Skýrsla stjórnar – Sigurður Loftsson, formaður LK og Baldur Helgi Benjamínsson, framkvæmdastjóri LK
Kl. 11:00 Umræður um skýrslu stjórnar og ávörp gesta
Kl. 12:30 Léttur hádegisverður í boði styrktaraðila
Kl. 13.00 Setning Fagþings nautgriparæktarinnar 2015
Kl. 13.05 Verðlaun fyrir besta nautið í árgangi 2007. Guðmundur Jóhannesson, ábyrgðarmaður nautgriparæktar, RML.
Kl. 13.15 Notkun PCR tækni í baráttu gegn júgurbólgu. Jørgen Katholm, DNA diagnostics A/S í Danmörku
Kl. 13.45 Hirðing geldkúa – áhrif á heilbrigði og nyt. Grétar Hrafn Harðarson, Jötunn/Dýralæknamiðstöðin ehf
Kl. 14.05 Þauleldi nautkálfa til kjötframleiðslu. Þóroddur Sveinsson, Landbúnaðarháskóla Íslands
Kl. 14.25 Fyrirspurnir
Kl. 14.35 Kaffihlé
Kl. 15.00 Frjósemi íslenskra mjólkurkúa. Þorsteinn Ólafsson, dýralæknir Nautastöðvar BÍ.
Kl. 15.20 Hvaða tæknibúnað borga kýrnar fyrir? Snorri Sigurðsson, SEGES
Kl. 15.40 Fyrirspurnir og ráðstefnuslit.
Kl. 16.45 Framhald umræðna og nefndastörf aðalfundar á Bitruhálsi 1.
Kl. 10-17 Veggspjaldakynning, vöru- og þjónustukynning styrktaraðila í Tjarnarsal Íslenskrar erfðagreiningar
Á föstudaginn, 13. mars, heldur aðalfundurinn svo áfram á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38. Dagskrá föstudagsins er:
Kl. 8.00 Nefndastörf
Kl. 12.00 Hádegisverður
Kl. 13.00 Afgreiðsla mála
Kl. 15.00 Kaffihlé
Kl. 15.20 Afgreiðsla mála/kosningar
Kl. 16.30 Önnur mál
Kl. 16.45 Fundarlok
Kl. 16.45-17.15 Aðalfundur Nautgriparæktarmiðstöðvar Íslands
Að loknum aðalfundi LK verður svo haldin árshátíð kúabænda á Grand hótel Reykjavík og hefst hún klukkan 19.
Landssamband kúabænda hvetur bændur til að fjölmenna á þessa viðburði/BHB.