Aðalfundur LK hefst í vikunni
21.03.2011
Aðalfundur Landssambands kúabænda verður haldinn dagana 25. og 26. mars nk. á hótel KEA á Akureyri. Föstudaginn 25. mars hefst fundurinn kl. 10 með hefðbundinni dagskrá s.s. skýrslu stjórnar og ávörpum gesta. Eftir hádegismatinn verða flutt tvö afar áhugaverð erindi. Annars vegar flytur Daði Már Kristófersson, hagfræðingur, erindi um áhrif kynbóta á framleiðni íslenskra kúabúa og hins vegar flytur Baldur Helgi Benjamínsson, framkvæmdastjóri LK, erindi um stefnumörkun nautgriparæktarinnar 2021.
Fundurinn er opinn öllum og við hvetjum alla sem hafa tök á að fylgjast með störfum fundarins að gera það, annað hvort á staðnum eða hér á vefnum en sýnt verður beint frá fundinum á naut.is.
Hægt er að lesa nánar um dagskrá fundarins og fleiri gagnlegar upplýsingar með því að smella á flipann „Aðalfundur LK 2011“ hér vinstramegin á síðunni eða með því að smella hér. /SS