Aðalfundur Félags eyfirskra kúabænda 15. febrúar
14.02.2012
Aðalfundur FEK verður haldinn í Hlíðarbæ miðvikudaginn 15. febrúar kl. 11.30. Á dagskrá fundarins eru hefðbundin aðalfundarstörf en auk þess verða Grétar Hrafn Harðarson dýralæknir með erindi um júgurbólgu, meðferð og forvarnir og Baldur Helgi Benjamínsson, framkvæmdastjóri LK með erindi um helstu verkefni LK um þessar mundir. Léttur hádegisverður í boði félagsins. Eyfirskir kúabændur eru hvattir til að fjölmenna!