
Aðalfundir aðildarfélaga BÍ
10.03.2020
Nú er sá tími árs sem allmargir aðalfundir aðildarfélaga BÍ eru fram undan. Nokkrir eru þó liðnir sem haldnir eru snemma árs. Töluverð óvissa er vegna COVID-19 veirunnar sem nú herjar á landann. Stjórnvöld hafa ekki gefið út tilskipanir um samkomubann en víða er viðburðum frestað í varúðarskyni. Bændur eru hvattir til þess að fylgjast vel með fréttum og tilkynningum frá sínum félögum.
Upplýsingar um aðalfundi eru birtar hér með fyrirvara um breytingar vegna sóttvarnarreglna eða annarra ástæðna.
Dagsettir fundir
Geitfjárræktarfélag Íslands – 20. mars – Matís, Grafarholti, kl. 16.00
Búnaðarsambands Kjalarnesþings – 24. mars – Lambhagi, Reykjavík, kl. 20.00
Landssamband kúabænda - 27. - 28. mars – Hótel Saga - FRESTAÐ
Búnaðarsamtök Vesturlands - 31. mars – Ásgarður, Hvanneyri, kl. 13.00 - FRESTAÐ
Búnaðarsamband Húnaþings og Stranda – 1. apríl – Laugarbakka, kl. 11.00
Landssamtök sauðfjárbænda – 2. - 3. apríl – Hótel Saga
Félag ferðaþjónustubænda – 3. apríl – Hótel Natura, Reykjavík
Búnaðarsamband S-Þingeyinga – 6. apríl – Breiðamýri kl. 10.00 - FRESTAÐ
Búnaðarsamband Eyjafjarðar - 7. apríl. Staðsetning óákveðin.
Búnaðarsamband Suðurlands – 8. apríl – Hótel Selfoss, kl. 11.00 - FRESTAÐ
Samband garðyrkjubænda – 7. maí – Hús Karlakórs Selfoss
Æðarræktarfélag Íslands – 29. - 30. ágúst - Skagafjörður
Landssamtök skógareigenda – 2. október – Hótel Hamar Borgarnesi
Liðnir fundir
Samtök ungra bænda – 17. janúar - Varmaland
Samband íslenskra loðdýrabænda – 13. febrúar – Hótel Selfoss
Verndun og ræktun – 27. febrúar – Hótel Saga
Annað
Landssamband veiðifélaga – 5. - 6. júní – Sel Hótel, Mývatni
Beint frá býli - Haldinn síðsumars eða í haust vegna COVID-19.
Óákveðið / upplýsingar liggja ekki fyrir
Búnaðarsamband Skagfirðinga
Búnaðarsamband A-Skaftafellssýslu
Búnaðarsamband Austurlands
Búnaðarsamband Vestfjarða
Búnaðarsamband N-Þingeyinga
Félag eggjaframleiðenda
Félag kjúklingabænda
Félag svínabænda
Félag hrossabænda
Athugasemdir um breytingar eða viðbætur má gjarnan senda á tb@bondi.is og þá uppfærum við listann um hæl.