5,5% söluaukning á nautakjöti
13.06.2013
Landssamtök sláturleyfishafa hafa tekið saman nýjar framleiðslu- og sölutölur kjötgreina fyrir maí þar sem m.a. kemur fram að sala á nautakjöti sl. 12 mánuði, júní 2012-maí 2013, nam 4.235 tonnum sem er 5,5% meira en 12 mánaða tímabilið þar á undan. Þá kemur fram í samantektinni að framleiðslan hafi, á sama tímabili, numið 4.247 tonnum sem er aukning um 5,9% miðað við tímabilið júní 2011-maí 2012.
Heildarframleiðsla nautgripakjöts í mánuðinum var 376 tonn sem skiptist þannig að 217 tonn var ungnautakjöt eða 57,9% af heildar framleiðslunni. Kýrkjöt var 140 tonn eða 36,2% af heildinni. Eðlilega þá endurspeglast framleiðsluflokkarnir í sölutölunum og á ársgrunni stendur ungnautakjöt undir 58,0% af heildarsölunni og kýrkjöt 36,1%.
Horft til annarra kjöttegunda kemur fram í samantektinni að heildarsalan á landinu öllu hefur aukist sl. 12 mánuði um 3,5%. Mest er sem fyrr salan á alifuglakjöti eða 7.960 tonn (32,1%) og þar á eftir kemur lamba- og kindakjöt með 6.501 tonn eða 26,2% markaðshlutdeild.
Það sem af er árinu hefur verið flutt inn 59% meira af kjöti til landsins en á sama tímabili árið 2012 og munar þar mestu um stóraukinn innflutning á svínakjöti miðað við fyrra ár. Alls nemur innflutt kjöt 473 tonnum, þar af 285 tonn af alífuglakjöti og 149 tonn af svínakjöti. Innflutningur á nautakjöti er heldur meiri (+5,5%) það sem af er þessu ári eða 25 tonn/SS.