
5,0% aukning á heildarinnvigtun frá því í fyrra
23.08.2023
Samkvæmt nýjasta yfirliti Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði (SAM), sem nær yfir tímabilið frá byrjun ágúst í fyrra til lok júlí í ár, heldur innvigtun ársins áfram að vera yfir innvigtun 2022. Í júlí var heildarinnvigtun mjólkur 12,9 milljónir lítra, sem er 5,0% aukning frá júlí í fyrra. Innvigtun mjólkur fyrstu sjö mánuði ársins er þannig komin í tæplega 91,1 milljónir lítra sem er aukning um rúma 2,5 milljónir lítra milli ára (eða 3,0%) en á sama tíma í fyrra nam sjö mánaða innvigtun 88 milljónum lítra. Hvað varðar innvigtun síðastliðna tólf mánuði þá stendur hún í 150,6 milljónum lítra, sem er 3,0% aukning miðað við sambærilegt tímabil mánuðina tólf þar á undan.
Í yfirlitinu kemur fram að salan á fitugrunni hefur aukist um 2,4% frá fyrra ári þegar litið er til síðustu 3 mánaða og -3,0% ef litið er til júlímánaðar. Ekki er endilega um raunverulegan sölusamdrátt að ræða milli mánaða, þar sem töluverð sala sé í kringum verslunarmannahelgina sem var í ágúst í ár en var í júlí í fyrra. Salan á fitugrunni síðastliðna tólf mánuði nemur þannig 149,1 milljónum lítra, sem er aukning um 2,3% frá mánuðunum tólf þar á undan. Sé litið til próteinsölunnar, þá hefur sala á próteingrunni aukist um 4,2% frá fyrra ári sé litið til síðustu 3 mánaða en 1,5% sé litið til júlímánaðar. Salan á próteingrunni síðastliðna tólf mánuði nemur þannig 131,3 milljónum lítra, sem er aukning um 4,7% frá mánuðunum tólf þar á undan.
