
Viðskipti með 1 milljón lítra á fyrsta innlausnardegi
14.03.2017
Fyrsti innlausnardagur ríkisins á greiðslumarki mjólkur var 1. mars síðastliðinn. Þar óskuðu 15 greiðslumarkshafar eftir að ríkið innleysti greiðslumark sitt og 35 tilboð um kaup bárust. Innlausnarverð er 138 krónur á lítra og er óbreytt út árið 2017.
Samtals var óskað eftir að ríkið innleysti 1.061.298 lítra að upphæð 146.459.124 krónur. 265.324 lítrum var úthlutað úr forgangspotti 1, 10% umframframleiðslupotti, 265.325 lítrum úr forgangshópi 2, nýliðahópi, og 530.649 lítrum úr almennum potti. Gild tilboð um kaup á greiðslumarki voru frá 35 framleiðendum og var alls óskað eftir 2.386.000 lítrum. Í forgangi 1, framleiðendur sem höfðu framleitt 10% umfram greiðslumark á viðmiðunarárunum, voru 23 framleiðendur og í nýliðaforgangi voru 6 framleiðendur. Við afgreiðslu tilboða lækkaði tilboðsmagn um 305.000 lítra þar sem tveir framleiðendur drógu kauptilboð til baka og einn framleiðandi uppfyllti ekki öll skilyrði fyrir kaupum.
Framleiðendur sem teljast nýliðar eða framleiddu a.m.k. 10% umfram greiðslumark á árunum 2013-2015 hafa forgang að kaupum 50% þess greiðslumarks sem er innleyst. Sá pottur skiptist síðan jafnt á milli forgangshópanna og skiptist svo hlutfallslega í samræmi við þann lítrafjölda sem óskað var eftir af framleiðendum í þeim hópum. Það greiðslumark sem þá er eftir er til úthlutunar öðrum kaupendum greiðslumarks og kaupendum í forgangshópum, að frádregnu því magni sem þeir fengu úthlutað úr forgangspotti, líkt og kemur fram í tilkynningu frá MAST.
Innlausn greiðslumarks fer fram 1. mars, 1. maí, 1. september og 1. nóvember ár hvert og er innlausnin í höndum Matvælastofnunar.