28% raunlækkun nautakjöts síðan 1997
07.01.2010
Hér á naut.is er að finna yfirlit yfir verð á nautgripakjöti til bænda, síðan 2002. Landssambandi kúabænda barst mjög nýlega afrit af innleggsreikningi til framleiðanda frá því í desember 1997. Þá var verð á UN1 A, algengasta flokki nautgripakjöts, 324,50 kr/kg. Ef nautakjötsverðið hefði fylgt almennri þróun verðlags í samfélaginu, væri það 640 kr/kg. Í dag er það hjá sama sláturleyfishafa 464 kr/kg og hefur svo verið í tæp 2 ár. Raunlækkun til framleiðenda á þessum 12 árum er því 28%.