Beint í efni

25 ÁRA AFMÆLISÁRSHÁTÍÐ LANDSSAMBANDS KÚABÆNDA Í SJALLANUM 26. MARS

22.02.2011

 

Húsið opnar kl. 19.15 með fordrykk í boði Bústólpa ehf.

 

Veislustjórar verða þeir Oddur Bjarni Þorkelsson og Sævar Sigurgeirsson

 

Forréttur: Humarsúpa Sjallans með mangókeim, rjómatoppi, svörtum sesam og ítalskt krydduðu brauði
Aðalréttur: Heilgrillað nautafillet í blóðbergshjúp með soð-bakaðri kartöflu, ristuðu grænmeti, salatblöndu og villisveppasósu
Eftirréttur: Heimagerð, hnausþykk súkkulaðikaka með ávaxtasalati, rjómatoppi og súkkulaðihjúp

 

Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar spilar fyrir dansi fram eftir nóttu

 

Miðapantanir í síma 460 4477 – miðaverð 7.000 kr.

 

Gisting á Hótel KEA í síma 460 2000

 

Kúabændur eru hvattir til að fjölmenna!

 
(Gestir láti þess getið að gisting sé vegna aðalfundar og árshátíðar) 

 

Árshátíðarnefnd LK