16. fundur stjórnar LK 2016-2017
15.12.2016
Sextándi fundur stjórnar Landssambands kúabænda, starfsárið 2016-2017 var haldinn miðvikudaginn 30. nóvember 2016 kl. 16:00.
Símafundur.
Mætt eru Arnar Árnason formaður, Elín Heiða Valsdóttir ritari, Bessi Vésteinsson og Samúel Unnsteinn Eyjólfsson. Bóel Anna Þórisdóttir kemur inn sem varamaður fyrir Pétur Diðriksson. Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri, ritaði fundargerð.
Formaður býður fundarmenn velkomna og svo er gengið til dagskrár.
Þetta var gert.
- Umsögn Landssambands kúabænda um reglugerð um nánari útfærslu á búvörusamningum, stuðning í nautgriparækt.
Framkvæmdastjóri kynnti drög að umsögn LK til atvinnuvegaráðuneytis. Miklar umræður um nýliðun, stuðning við nautakjötsframleiðslu og fjárfestingastuðning. Stjórn samþykkti umsögn og felur framkvæmdastjóra að senda áfram á ráðuneyti og birta í framhaldinu á naut.is til upplýsingar.
Fleira var ekki gert og fundi slitið kl. 18:00
Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda.