Beint í efni

1.000 manns í grillveislu!

10.07.2009

Vegna kynningar á sjónvarpsþáttunum „Eldum íslenskt“ sem nú eru til sýninga á sjónvarpsstöðinni ÍNN og mbl.is, var heill nautsskrokkur grillaður á grilli LK við verslun Krónunnar á Granda í Reykjavík í gær. Mæltist framtakið afar vel fyrir og fengu um 1.000 manns að borða grillað nautakjöt, með bernaisesósu og fersku grænmeti frá SFG. Byrjað var að skera nautið um kl. 16 í gær og var eftir það samfelld biðröð við skurðarbrettið til kl. 19.15 er allt kjöt var upp urið og verslunin lokaði. Var afar ánægjulegt að sjá hvað gestum og gangandi líkaði maturinn vel. Skrokkurinn var 200 kg UN 1 A frá Sláturhúsinu Hellu hf, af grip frá þeim Sigurjóni og Sigríði Lóu á Efstu-Grund undir Eyjafjöllum. Talsvert var spurt um uppruna kjötsins og var ánægjulegt að geta sagt frá því.

Eldamennskan tók rúmlega 20 klukkustundir, en kveikt var upp í grillinu um kl. 19 í fyrrakvöld. Bjarni G. Kristinsson yfirmatreiðslumeistari Hótel Sögu bar hitann og þungann af matreiðslunni, einnig lögðu matreiðslumennirnir Guðmundur Guðmundsson, Ægir Friðgeirsson og Gunnar Karl Gíslason gjörva hönd á plóg. Umsjón með kynningunni var í höndum Tjörva Bjarnasonar, sviðsstjóra útgáfu- og kynningarsviðs BÍ. Hann tók myndirnar hér að neðan.

 

Kynningin tókst afar vel og er öllum þeim sem að henni komu færðar bestu þakkir.

 

Bjarni penslar skrokkinn með marineringu (úr hvítlauk, bjór og maltöli), Gunnar Karl mundar hnífinn

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það þarf stórvirkar vinnuvélar til að flytja grillið með skrokknum á, lengstur hluti eldamennskunar fór fram við hlið Hótel Sögu

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Byrjað að skera og gestina drífur að

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Guðmundur Guðmundsson sker grænmeti og útdeilir bernaissósu. Eins og sjá má var veðrið gott og fór sífellt batnandi!

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hægt var að glugga í Bændablaðið meðan kjötið rann ljúflega niður

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Baldur Helgi Benjamínsson, framkvæmdastjóri LK og Þröstur Haraldsson, ritstjóri Bændablaðisins