01. apríl 2020
Afleysingaþjónusta vegna COVID-19

Bændasamtök Íslands í samvinnu við búnaðarsambönd hafa skipulagt afleysingaþjónustu fyrir bændur sem veikjast af völdum kórónuveirunnar.
Um 100 manns eru á viðbragðslista sem munu taka að sér bústörf þegar og ef þörf er á. Þeir bændur, sem geta ekki sinnt sínum störfum, eiga kost á að sækja um afleysingu að hámarki í 14 daga.
Bændasamtökin hafa gert samkomulag, fyrir hönd sinna félagsmanna, við félagsmálaráðuneytið og Vinnumálastofnun um fjárstuðning úr Tryggingasjóði sjálfstætt starfandi einstaklinga til að standa undir kostnaði félagsmanna við þjónustuna.
Búnaðarsamböndin sjá um utanumhald, samskipti við verktaka og útdeilingu verkefna á hverju búnaðarsambandssvæði. Hægt er að sækja strax um aðstoð en boðið er upp á þjónustuna út maí.
Upplýsingar eru veittar í netfangið afleysing@bondi.is og í eftirfarandi símanúmerum:
Búnaðarsamband A-Skaftfellinga, sími 867-9634
Búnaðarsamband Austurlands, sími 893-9375
Búnaðarsamband Eyjafjarðar, sími 460-4472
Búnaðarsamband Húnaþings og Stranda, sími 451-2602
Búnaðarsamband N-Þingeyinga, sími 895-0833
Búnaðarsamband Skagfirðinga, sími 846-8185
Búnaðarsamband Suðurlands, sími 480-1800
Búnaðarsamband S-Þingeyinga, sími 843-9140
Búnaðarsamtök Vesturlands, sími 437-1215