12. janúar 2023
Upplýsingar um Búgreinaþing Bændasamtakanna 2023

Búgreinaþing Bændasamtaka Íslands verður haldið á Hótel Natura í Reykjavík 22. og 23. febrúar 2023.
DAGSKRÁ
22.febrúar
Kl 11:00
Þingsetning - Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands
Ávarp - Guðlaugur Þór Þórðarson, Umhverfis-, orku og loftslagsráðherra
Kynning Náttúruhamfaratrygginga Íslands
Kl 11:30
Hádegismatur
Kynning á samstarfsvettvangi BÍ og SAFL
Kl 12:30
Sameiginlegur fundur allra búgreinadeilda
Kl 17:00
Fundum búgreinadeilda lýkur
Kl 19:00
Hátíðarkvöldverður - fyrirkomulag og skráning auglýst þegar nær dregur
23.febrúar
Kl 9:00
Fundum fram haldið í deildum sauðfjár- og nautgripabænda
Fullgildir félagsmenn BÍ innan hverrar búgreinadeildar hafa rétt til fundarsetu og kjörgengi á Búgreinaþingi sinnar deildar, nema samþykktir/reglur búgreinadeildar tiltaki annað. Fullgildir félagsmenn í BÍ eru þeir einstaklingar og lögaðilar sem skráðir eru í samtökin, hafa skráð veltu síns búrekstrar og skulda ekki gjaldfallin félagsgjöld nú um áramót.
INNSENDING TILLAGNA FYRIR BÚGREINAÞING
Allir fullgildir félagar í Bændasamtökum Íslands geta sent inn tillögur á Búgreinaþing.
-SKILAFRESTUR ER 1. FEBRÚAR 2023-
Smelltu hér til að skrá þína tillögu.
SETA Á BÚGREINAÞINGI
Búgreinadeildir nautgripabænda og sauðfjárbænda stóðu fyrir kosningu búgreinaþingsfulltrúa. Niðurstöður kosninganna má sjá á hlekk hér að neðan. Þá voru fulltrúar deildar Skógarbænda, kosnir á sér fundum. Allar aðrar búgreinadeildir geta skráð sig hér að neðan.
UPPLÝSINGAR FYRIR FULLTRÚA
Hótel Natura býður sérkjör á gistingu í tengslum við Búgreinaþing:
- Tveggja manna herbergi ásamt morgunverði: 24.500 ISK nóttin
- Einstaklingsherbergi ásamt morgunverði: 20.950 ISK nóttin
SMELLTU HÉR TIL AÐ BÓKA HERBERGI Á ÞESSUM KJÖRUM
Athugið að ef þú lendir í vandræðum með bókun á hóteli eða hefur athugasemdir eða séróskir vinsamlegast hafðu samband við miceres@icehotels.is
FUNDIR BÚGREINADEILDA Í AÐDRAGANDA BÚGREINAÞINGS
Í aðdraganda Búgreinaþings héldu nokkrar búgreinadeildir opna fundi fyrir félagsmenn þar sem farið var yfir ýmis málefni tengt starfsemi deildanna. Hér má sjá yfirlit yfir fudina sem voru haldnir.
Deild kúabænda
Upplýsingafundur um fyrirkomulag Búgreinaþings Nautgripabænda BÍ var haldinn föstudaginn, 13. janúar 2023. Glærur fundarinns má finna á félagssíðu Bændatorgsins.
Deild sauðfjárbænda
Deild sauðfjárbænda hélt þrjá fundi um mismunandi málefni í aðdraganda búgreinaþings. FFndarglærur og upptökur af fundunum má finna á Bændatorginu undir félagssíðu.
Dagskráin var sem hér segir
10. janúar - Framleiðsla og sala & Framundan í félagsstarfinu
17. janúar - Búvörusamningar og Áherslur í endurskoðun
24. janúar - Framgangur verkefna og áherslur í starfi
Deild Skógarbænda
Stjórn SkógBÍ héldu svæðaskipta fjarfundi í aðdraganda Búgreinþings.
Dagskrá
Farið verður yfir hvað stendur til á Búgreinaþinginu
Kosnir verða fulltrúar á þingið af viðkomandi svæði
Leggja má fram tillögur fyrir Búgreinaþingið
Önnur mál
Fundartími fundanna fimm eru þessir (smelltu á fundartíma til að komast inn á fundina):
Austurland 23.janúar (mán) kl 20:00 (5 fulltrúar á Búgreinaþing)
Suðurland 23.janúar (mán) kl 21:00 (4 fulltrúar á Búgreinaþing)
Norðurland 24.janúar (þri) kl 20:00 (6 fulltrúar á Búgreinaþing)
Vesturland 24.janúar (þri) kl 21:00 (4 fulltrúar á Búgreinaþing)
Vestfirðir 25.janúar (mið) kl 20:00 (1 fulltrúi á Búgreinaþing)