
Búgreinaþing 2023
Búgreinaþing 11 búgreinadeilda Bændasamtaka Íslands var haldið dagana 22. og 23. febrúar á Hótel Natura í Reykjavík, þar sem bændur allra búgreina komu saman til þings um málefni íslensks landbúnaðar. Setningarathöfn var klukkan 11:00, miðvikudaginn 22. febrúar, þar sem Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtakanna, Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra héldu erindi. Jafnframt héldu forsvarsmenn Náttúruhamfaratrygginga Íslands kynningu um tryggingamál bænda, auk fulltrúa verkefnisstjórnar Samtaka fyrirtækja í landbúnaði.
Rúmlega 200 bændur funduðu á Búgreinaþingi úr öllum búgreinum þar sem málefni landbúnaðar voru rædd vítt og breitt ásamt framtíðarmöguleikum í greininni. Á þinginu voru ályktanir bornar upp og fulltrúar til Búnaðarþings kosnir, sem haldið verður á sama stað í lok mars næstkomandi.
Helstu málefni sem tekin voru fyrir á Búgreinaþingi að þessu sinni snéru að loftslagsmálum, nýliðun, hækkun aðfanga, tryggingavernd fyrir bændur, kjaramál bænda, nýsköpun og tilraunir með nýjar tegundir ásamt eflingu kornræktar og fleira.
Upptaka af setningu Búgreinaþings 2023
Ræðu Gunnars Þorgeirssonar, formanns BÍ má finna hér
Kynningu Huldu Ragnheiðar Árnadóttur, forstjóra NTÍ má finna hér
Kynningu Steingríms J. Sigfússonar um heildarsamtök í landbúnaði má finna hér
Samþykktar ályktanir:
Fréttir frá þinginu:
Fjölmargar ályktanir samþykktar á Búgreinaþingi
Hugmyndir að nýjum heildarsamtökum í landbúnaði
Ráðherra afhentur fyrsti endurunni girðingarstólpinn
Breytingar á stjórnum búgreina
Nýr formaður og stjórn nautgripabænda kjörin á Búgreinaþingi
Nanna Jónsdóttir á Miðhóli nýr formaður hrossabænda
DAGSKRÁ:
22. febrúar
Kl 11:00
Þingsetning - Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands
Ávarp - Guðlaugur Þór Þórðarson, Umhverfis-, orku og loftslagsráðherra
Kynning Náttúruhamfaratrygginga Íslands
Kl 11:30
Hádegismatur
Kynning á samstarfsvettvangi BÍ og SAFL
Kl 12:30
Sameiginlegur fundur allra búgreinadeilda
Kl 17:00
Fundum búgreinadeilda lýkur
Kl 19:00
Hátíðarkvöldverður
23. febrúar
Kl 09:00
Fundum fram haldið í deildum sauðfjár- og nautgripabænda
Fullgildir félagsmenn BÍ innan hverrar búgreinadeildar hafa rétt til fundarsetu og kjörgengi á Búgreinaþingi sinnar deildar, nema samþykktir/reglur búgreinadeildar tiltaki annað. Fullgildir félagsmenn í BÍ eru þeir einstaklingar og lögaðilar sem skráðir eru í samtökin, hafa skráð veltu síns búrekstrar og skulda ekki gjaldfallin félagsgjöld.
UPPLÝSINGAR FYRIR FULLTRÚA
Gisting:
Hótel Natúra er nú uppbókað. Þau herbergi sem tekin voru frá fyrir þingið eru nú öll upbókuð og hótelið fullt. Því þurfa fulltrúar að leita sér gistingar annarsstaðar. Má benda á ýmsar vefsíður til að kanna framboð, eins og t.d. dohop.is eða hotels.com.
Ferðalög - Ferðakostnaður:
Þingfulltrúar bóka sér sjálfir ferðir á eigin kostnað. Ferðakostnaður fæst í sumum tilfellum endurgreiddur að hluta eða öllu leiti í samræmi við ákvarðanir stjórnar Bændasamtaka Íslands. Verður skráðum og staðfestum þingfulltrúum sendar leiðbeiningar um hvernig sækja beri um endurgreiðsluna.