Beint í efni

Félag hrossabænda er opið öllum þeim er stunda, eða hafa áhuga á, ræktun íslenska hestsins. Félagið samanstendur af níu aðildarfélögum og ganga félagar í aðildarfélög á sínu svæði og öðlast þannig félagsaðild að Félagi hrossabænda. Í stjórn félagsins sitja fimm menn, kjörnir til þriggja ára í senn. Aðalfundur er haldinn ár hvert og þar eiga seturétt fulltrúar allra aðildarfélaga samkvæmt samþykktum FHB.

Félagið rekur skrifstofu í Bændahöllinni í Reykjavík. Núverandi stjórn skipa Sveinn Steinarsson formaður, Heiðrún Ósk Eymundsdóttir varaformaður, Vignir Sigurðsson gjaldkeri,  Eysteinn Leifsson ritari og Guðný Helga Björnsdóttir meðstjórnandi.

Tilgangur félagsins er eftirfarandi:

  • Að vera málsvari aðildarfélaga og einstakra félagsmanna og koma fram fyrir þeirra hönd.
  • Að vinna ötullega að ræktun íslenska hestsins sem reiðhests, með kynbótum, skýrsluhaldi og mótun ræktunarstefnu í samvinnu við Bændasamtök Íslands, þar með talin þátttaka í fagráði.
  • Að glæða áhuga fyrir hrossarækt og hestamennsku með öflugu fræðslu- og kynningarstarfi.
  • Að vinna í samvinnu við önnur félög að góðu uppeldi, aðbúnaði og tamningu hrossa.
  • Að stuðla að hóflegri landnýtingu og umhverfisvernd.
  • Að vinna að sölumálum fyrir reiðhesta og kynbótahross, innanlands og erlendis og hafa um það samvinnu við aðra aðila, með það að markmiði að skapa aukin verðmæti, hrossaeigendum og þjóðinni til hagsældar.
  • Að vinna að sölumálum fyrir hrossaafurðir, jafnt á innlendum, sem erlendum mörkuðum, með það að markmiði að auka verðmæti afurðanna.

Félagar í FHB fá frían aðgang að gagnagrunninum WorldFeng sem inniheldur upplýsingar um öll skrásett íslensk hross í heiminum. Að auki á FHB í samstarfi við Landbúnaðarháskóla Íslands og fleiri aðila um námskeið og aðra viðburði og njóta félagar vildarkjara við skráningu.