Upplýsingar
A. Ræktunarstarf: Landsráðunautar: Gunnfríður E. Hreiðarsdóttir, geh@bondi.is og Magnús B. Jónsson, mbj@bondi.is.
Bera ábyrgð á uppgöri skýrsluhalds í nautgriparækt, framkvæmd kúasýninga, mati á kynbótagildi gripa og veita almenna ráðgjöf um kynbætur nautgripa. Auk þess hafa þau með höndum uppgjör á sæðingaskýrslum og umsjón með gagnabanka nautgriparæktarinnar. Magnús er annar tveggja fulltrúa Bændasamtakanna í Fagráði í nautgriparækt og er í forsvari fyrir ræktunarhópi sem starfar á vegum þess. Gunnfríður Elín er ritari Fagráðs í nautgriparækt.
B. Skýrsluhald í nautgriparækt: Starfsmaður, verkefnisstjóri: Sigurður Kristjánsson, sk@bondi.is.
Umsjón með daglegri framkvæmd skýrsluhalds í nautgriparækt, móttöku og skráningu skýrslna, mánaðarlegum keyrslum, viðhaldi og leiðréttingum á upplýsingum í gagnagrunnum nautgriparæktar. Sigurður veitir upplýsingar og ráðgjöf um frágang á mánaðarlegum kúaskýrslum.
C. Fóðrun og hirðing: Ráðunautur: Gunnar Guðmundsson, gg@bondi.is.
Sinnir í hlutastarfi ráðgjöf um fóður, fóðrun og umhirðu nautgripa.
D. Fóðrun og hirðing nautgripa. NorFór fóðurmatskerfið: Berglind Ósk Óðinsdóttir, boo@bondi.is.
Verkefnisstjóri við innleiðingu NórFór fóðurmatskerfisins og fóðuráætlanagerð. Fyrst um sinn í hlutastarfi ásamt meistaranámi í fóðurfræði við LbhÍ
E. Nautastöð BÍ: Forstöðumaður: Sveinbjörn Eyjólfsson, bull@emax.is.
Nautastöð BÍ er staðsett á Hvanneyri í Borgarfirði. Þar fer fram sæðistaka, auk þess sem starfsmenn nautastöðvarinnar sjá um útsendingu á sæði til frjótækna víðsvegar um land. Aðstoðarmaður og hirðir er Ingvar Þór Jóhannsson, bull@emax.is
Á vef nautgriparæktarinnar verður hægt að nálgast upplýsingar og fræðsluefni varðandi starfsemi BÍ er tengist nautgriparækt. Ábendingar er varða nautgriparæktarvefsíðuna sendist til geh@bondi.is