Eftir mánuðum
Breytingar á lögum er varða gjaldfærslu við kaup á greiðslumarki
Á Alþingi voru samþykkt lög um breytingar á ýmsum lagaákvæðum um skatta og gjöld þann 18. desember sl. og þar með breyting á lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum. Þar var felld niður heimild til að færa niður stofnkostnað við kaup á framleiðslurétti í landbúnaði.
Áfram
Opnunartími skrifstofu BÍ yfir hátíðarnar
Skrifstofur Bændasamtaka Íslands verða opnar sem hér segir yfir hátíðarnar:
- fimmtudagur 23. desember, Þorláksmessa: Lokað
- föstudagur 24. desember, aðfangadagur: Lokað
- mán. 27. desember: Opið 10:00-16:00
Áfram
Landbúnaðartrygging VÍS tekur breytingum
Vátryggingafélag Íslands hefur um árabil boðið bændum „Landbúnaðartryggingu“ sem er sérsniðin trygging fyrir búrekstur. Landbúnaðartryggingin er víðtæk og tekur til búfjár, heyja og annars fóðurs samkvæmt forðagæsluskýrslum ásamt áhöldum og tækjum sem tilheyra hefðbundinni búfjárrækt. Einnig er ábyrgðartrygging bænda innifalin í tryggingunni.
Áfram
Ný nautaskrá
Innan skamms verður ný nautaskrá send til allra kúabænda en hún er nú þegar aðgengileg á vefnum (sækja pdf). Í skránni eru nú 25 naut úr nautaárgöngum 2002-2004. Nautum úr árgangi 2002 fer nú fækkandi en sá árgangur var mjög öflugur í samanburði við flesta aðra.
Áfram
Niðurstöður úr skýrsluhaldi nautgriparæktarinnar komnar á netið
Athygli er vakin á því að niðurstöður afurðaskýrsluhaldsins í nautgriparæktinni hafa verið birtar á vefnum. Þær er hægt að nálgast með því að smella...
Áfram
BÍ lýsa yfir undrun sinni á ummælum formanns samninganefndar við ESB
Bændasamtökin hafa sent bréf til Stefáns Hauks Jóhannessonar, sendiherra og formanns samninganefndar Íslands við ESB, vegna ummæla hans í Fréttablaðsviðtali laugardaginn 27. nóv. sl. Samtökin lýsa í bréfinu undrun sinni á ummælunum en í viðtalinu lýsti hann m.a. yfir vonbrigðum sínum yfir því að samtökin taki ekki þátt í rýnifundum um landbúnaðarmál úti í Brussel í þessari viku.
Áfram