Útflutningur

Útflutningur

Hrossaútflutningur - Hestavegabréf


Tölvudeild Bændasamtaka Íslands sér um frágang og útgáfu hestavegabréfa fyrir hross sem flytja á úr landi í samræmi við reglugerð um útflutning hrossa nr. 449/2002.

Útflytjendur þurfa að fylla út þar til gerð eyðublöð, sem fást hjá Bændasamtökum Íslands, þar sem tilgreina þarf upplýsingar um fæðingarnúmer, nafn, fæðingarstað, fæðingarár, lit, foreldra, afa og ömmur hrossins ásamt upplýsingum um seljanda og útflytjanda. Mjög mikilvægt er að útflytjendur sannreyni að allar upplýsingar séu réttar áður en vegabréfið er gefið út, ella kann að falla aukakostnaður á útflytjanda, ef gefa þarf hestavegabréfið út að nýju. Upplýsingar þurfa að berast a.m.k. 5 dögum fyrir áætlaðan útflutning til Bændasamtakanna.

Ef seljandi er ekki skráður eigandi í WorldFeng þurfa eigendaskipti að berast skriflega frá skráðum eiganda fyrir útflutning.

Hestavegabréfið frá Bændasamtökunum kostar kostar kr. 4.700 fyrir hross með A-vottun á ætterni, en kr. 5.400 fyrir hross sem hefur ekki þess konar vottun. Auk þessa þarf að greiða stofnverndarsjóðsgjald sem er kr. 500 á hest og kostnað við skoðun útflutningshrossa í útflutningshöfn samkvæmt gjaldskrá fyrir eftirlit og þjónustuverkefni dýralækna sem annast opinber eftirlit og þjónustuverkefni dýralækna sem annast opinber eftirlitsstörf er
kr. 3.600. Allur kostnaður er innheimtur við afhendingu hestavegabréfanna.

Að gefnu tilefni er áréttað að ekki er hægt að ábyrgjast frágang á hestavegabréfum ef áðurnefnd eyðublöð berast ekki rétt útfyllt 5 virkum dögum fyrir áætlaðan útflutning.

Umsjónarmaður með útgáfu hestavegabréfa er Hallveig Fróðadóttir, hægt er að hafa samband með tölvupósti eða í síma



Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi