Beinar greiðslur

Beinar greiðslur


Mjólkurframleiðsla og nautgriparækt


Beingreiðslur mjólkur

Heildargreiðslumark er ákveðið árlega með reglugerð, heildarbeingreiðslur eru ákveðnar í fjárlögum á grundvelli samnings um starfsskilyrði mjólkurframleiðslunnar 2005-2014.

Reglugerð um beingreiðslur mjólkur 2012

Skipting skv. gildandi reglugerðum við síðustu greiðslu:

A-hluti: 47,67%   Er greiddur á greiðslumark óháð framleiðslu, að því tilskyldu að hún nái  90% af greiðslumarki uppgjörsársins.
B-hluti: 35,45%   Greiðist á framleiðslu innan greiðslumarks. Greitt er fyrsta virkan dag hvers mánaðar fyrir innlegg næst síðasta mánaðar.
C-hluti: 16,88%   Er álagsgreiðsla greidd á framleiðslu síðustu sex mánaða ársins 2012:
                           10% eru greidd í  sep. 2012   
                           15% eru greidd í okt. og nóv. 2012
                           20% eru greidd í des. 2012,  jan. 2013 og feb. 2013

Greitt er fyrsta virkan dag hvers mánaðar fyrir innlegg næstsíðasta mánaðar.

Að því marki sem beingreiðslur ganga ekki út eftir uppgjör innan greiðslumarks eru  þær greiddar á hvert prósentustig framleiðslu umfram greiðslumark .
Einingaverð beingreiðslna reiknast þannig að heildarupphæð beingreiðslna ársins er deilt með heildargreiðslumarkinu.

Einingaverð á  árinu:

 Ár

Greiðslumánuður

A-hluti 
kr/ltr.

 Uppgjörsár 
A-hluta

B-hluti 
kr./ltr.

C-hluti
kr./ltr.

Uppgjörsár   B/C hluta

 2012

janúar

21,3617

2012

15,0986

17,1433

2011

 2012

febrúar

21,3617

 2012

15,0986

 

 2011

 2012

mars

21,3617

 2012

15,8857

0

 2012

 2012

apríl

21,3617

 2012

15,8857

0

 2012

 2012

maí

21,3617

 2012

15,8857

0

 2012

 2012

júní

21,3617

 2012

15,8857

0

 2012

 2012

júlí

21,3617

 2012

15,8857

0

 2012

 2012

ágúst

21,3617

 2012

15,8857

0

 2012

 2012

september

21,3617

 2012

15,8857

 

 2012

 2012

október

21,3617

 2012

15,8857

 

 2012

 2012

nóvember

21,3617

 2012

15,8857

 2012

 2012

desember

21,3617

 2012

15,8857

 2012



Einingaverð fyrri verðlagsára

Gripagreiðslur

Gripagreiðslur eru  greiddar  á   mjólkur- og  holdakýr  sem  skráðar  eru  í  einstaklingsmerkingakerfinu Mark.

Reglugerð um gripagreiðslur á lögbýlum



Sauðfjárrækt



Beingreiðslur

Beingreiðslur greiðast úr ríkissjóði til handhafa í samræmi við greiðslumark lögbýlisins eins og það er  á hverjum tíma. Beingreiðsla 2012 er 6.348 kr. á  hvert ærgildi.  

Til  að  fá  fullar beingreiðslur þarf handhafi að eiga  að  lágmarki  0,6  vetrarfóðraðar kindur að hausti fyrir hvert ærgildi greiðslumarks á komandi ári.

Beingreiðslur greiðast í níu jöfnum hlutum á  tímabilinu febrúar-september.   Þar af eru tveir hlutar greiddir í febrúar.     Greiðsla fer fram fyrsta virkan dag hvers mánaðar.

Reglugerð um greiðslumark sauðfjár á lögbýlum 2008-2013


Gæðastýringarálag

Framleiðendum á búum með samþykkta gæðastýringu er greitt álag dilkakjöt í flokkum E,U,R og O í fituflokkum 1,2, 3, og 3+. Greiðslan var 146,7309 kr. á kg fyrir árið 2010.
Samkvæmt  núgildandi reglugerð  á  að  greiða fyrirframgreiðslu fyrir 15. mars sem  er 35%  af  greiðslu  fyrra árs til þeirra sem eru  áfram þátttakendur í gæðastýringu og eru með með nægan ásetning til að lokagreiðsla dugi fyrir fyrirframgreiðslunni.
Greiðsla  95%  vegna framleiðslu  janúar - október  fer fram 25. nóvember  (þá er fyrirframgreiðslan dregin frá).       Greiðsla  95% vegna framleiðslu í nóvember er 20. desember.  Lokauppgjör fer fram eigi síðar en 5. febrúar.


Reglugerð um gæðastýrða sauðfjárframleiðslu


Geymslugjald

Greidd er ákveðin krónutala í febrúar á framleitt kindakjöt fyrra árs.

Garðyrkja


Greitt er á framleiddar gúrkur, paprikur og tómata
 
Beingreiðslur árið 2010 og áætlun ársins 2011- pdf

Reglugerð um beingreiðslur í garðyrkju árið 2011


Handhafaskipti beinna greiðslna

Beingreiðslur greiðast ábúanda á lögbýli og á hverju lögbýli skal aðeins einn framleiðandi vera skráður handhafi. Þegar um fleiri sjálfstæða rekstraraðila er að ræða sem standa að búinu er þó heimilt að skrá þá sérstaklega. Sjálfstæður rekstraraðili telst sá einn sem hefur sjálfstætt virðisaukaskattsuppgjör. Tilkynna skal Bændasamtökum Íslands allar breytingar á því hver teljist vera handhafi beingreiðslna.

Eyðublað fyrir handhafaskipti beingreiðslna mjólkur og sauðfjár
Eyðublað fyrir handhafaskipti beingreiðslna í garðyrkju



Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi