Eldum íslenskt
Bændur hafa slegist í hóp með þekktustu matreiðslumönnum landsins við gerð matreiðsluþáttanna „Eldum íslenskt“. Sýningar eru á vef Morgunblaðsins og á sjónvarpsstöðinni ÍNN. Með þáttunum vilja bændur hvetja neytendur til þess að kaupa íslenskar búvörur og læra í leiðinni hefðbundnar og nýstárlegar eldunaraðferðir af kunnáttumönnum.
Sjá uppskriftir og upptökur á vef mbl.is
![]() 19. þáttur - Svínakjöt |
20. þáttur - Nautakjöt |
Í þáttunum er höfuðáhersla lögð á íslenskt hráefni úr sveitinni og rammíslenskar eldunaraðferðir. Það er meistarakokkurinn Bjarni G. Kristinsson, yfirmatreiðslumeistari á Hótel Sögu, sem stjórnar þáttunum en þeir eru unnir í nánu samstarfi við Bændasamtökin og flestöll búgreinafélög. Þættirnir verða blanda af fræðslu og matreiðslu og bæði vísað í hefðir og nýtísku aðferðir. Meðal kokka sem koma við sögu eru þau Gunnar Karl á Dilli, Þráinn Freyr á Grillinu, Jóhannes á Vox og Hrefna Sætran á Fiskmarkaðnum auk þaulreyndra manna úr Hótel- og veitingaskólanum. Farið verður í heimsókn í sveitina og spjallað við bændur um framleiðsluna auk þess sem kennd verða undirstöðuatriði við meðhöndlun ýmissa búvara, s.s. úrbeining kjöts og geymsla grænmetis. Markmiðið er að fjalla um hefðbundinn íslenskan heimilismat og sýna fram á þau ótvíræðu gæði sem íslensk búvöruframleiðsla býr yfir.
Þættirnir er sýndir vikulega fram á haust á mbl.is og á sjónvarpsstöðinni ÍNN auk þess að birtast á vefsíðum búgreinafélaganna þegar tímar líða. Þeir eru hver um sig um 20 mínútna langir og verða alls 20 talsins. Styrktaraðilar þáttanna eru Félag kjúklingabænda, Samband garðyrkjubænda, Félag hrossabænda, Landssamtök sauðfjárbænda, Landssamband kúabænda, Félag eggjaframleiðenda, Svínaræktarfélag Íslands, Félag ferðaþjónustubænda, Beint frá býli, Hótel Saga og Bændasamtökin.
Til baka
Fréttir og tilkynningar
Orlofsstyrkir fyrir bændur á öskusvæðunum
Stjórn Orlofssjóðs bænda hefur ákveðið að styðja sérstaklega við bændur á áhrifasvæði eldgossins í Eyjafjallajökli. Með þessu vill sjóðurinn hvetja bændur og fjölskyldur þeirra á svæðinu til þess að taka sér orlof og hvíla sig fjarri rykmengun og erfiðum verkum. Áfram
Bændasamtök Íslands
Skrifstofan er opin sem hér segir: Skrifstofan opin milli kl. 8:00-16:00 frá mánudegi til föstudags. Lokað er í hádeginu milli kl. 12:00 - 12:30. Bændasamtök Íslands eru skráð sem félagasamtök í fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra. Kennitala BÍ er 631294-2279 og vsk-númer: 45164 Áfram


















