Þroski túngrasanna 2009
Ráðunautar hafa tekið grassýni til að fá mat á orkugildi þess og meta þroska túngrasanna. Grassýnin eru tekin á sjö stöðum á landinu, Hvanneyri – Borgarfirði, Sauðanesi – Húnaþingi eystra, Hamri – Skagafirði, Möðruvöllum – Hörgárdal, Egilsstöðum – Héraði, Fornustekkum – Hornafirði og Stóra-Ármóti – Hraungerðishreppi.
Þegar niðurstöðurnar eru skoðaðar í samhengi við fyrri ár þá virðist fall á meltanleika túngrasanna vera svipað og árið 2007 en fall á meltanleika er að meðaltali um viku seinna en í fyrra.
Algeng viðmiðun á “úrvalsheyi” er að meltanlegt þurrefni fari ekki niður fyrir 75% og fóðureiningar í kg þurrefnis fari ekki niður fyrir 0,87 FEm. Við heyverkunina minnkar fóðurgildið alltaf eitthvað. Síðastliðinn mánudag var meltanleikinn á flestum mælingarstöðunum kominn niður fyrir eða að þessari viðmiðun.
Niðurstöður grasþroskamælinganna má sjá hér
Til baka
Fréttir og tilkynningar
Um fjármál Bændasamtaka Íslands
Bændasamtökin eru frjáls félagasamtök og í bókhaldi þeirra er skilið á milli þeirra fjármuna sem koma frá ríkinu vegna búnaðarlagasamnings og fjármuna sem fara í að reka hagsmunabaráttu bænda. Verkefni í gegnum búnaðarlagasamning eru ...Áfram
Bændasamtök Íslands
Skrifstofan er opin sem hér segir: Skrifstofan opin milli kl. 8:00-16:00 frá mánudegi til föstudags. Lokað er í hádeginu milli kl. 12:00 - 12:30. Bændasamtök Íslands eru skráð sem félagasamtök í fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra. Kennitala BÍ er 631294-2279 og vsk-númer: 45164 Áfram