Prenta síðu

Lesa fræðsluefni

15. apríl 2009

Landbúnaður skiptir máli


Mynd með frétt

Nýr bæklingur er kominn út hjá Bændasamtökunum sem fjallar um mikilvægi fæðuöryggis og matvælaframleiðslu, atvinnu í dreifbýli, fjölbreytni íslensks landbúnaðar og ekki síst þær áskoranir sem landbúnaður stendur frammi fyrir á heimsvísu.

Bæklinginn "Landbúnaður skiptir máli" er hægt að lesa á Netinu með því að smella hér

Að tilefni kosninga til Alþingis hafa Bændasamtökin sent efstu mönnum á öllum framboðslistum lesefnið og boðið þeim til funda þar sem m.a. verður fjallað um framtíðarhlutverk landbúnaðar í landinu. Fundirnir eru alls fjórir og verða haldnir fimmtudagskvöldið 16. apríl á eftirfarandi stöðum:  

Hótel Selfossi
Hlégarði í Mosfellsbæ
Hótel Borgarnesi
Hótel KEA á Akureyri.

Fundirnir  hefjast kl. 20:30 en fundur á Akureyri hefst þó ekki fyrr en kl. 21:00 vegna beinnar útsendingar í sjónvarpi.

Tilvonandi alþingismenn verða spurðir ákveðinna spurninga sem m.a. snúa að fæðuöryggi, atvinnu í dreifbýli og hvaða stefnu þeirra flokkur hafi í landbúnaðarmálum. Forystumenn bænda halda stutt framsöguerindi en síðan munu frambjóðendur halda tölu um sín áherslumál og afstöðu gagnvart íslenskum landbúnaði. Á eftir verða umræður þar sem frambjóðendur sitja í pallborði.



Til baka

Fréttir og tilkynningar

Um fjármál Bændasamtaka Íslands

Mynd með fréttBændasamtökin eru frjáls félagasamtök og í bókhaldi þeirra er skilið á milli þeirra fjármuna sem koma frá ríkinu vegna búnaðarlagasamnings og fjármuna sem fara í að reka hagsmunabaráttu bænda. Verkefni í gegnum búnaðarlagasamning eru ...Áfram

Bændasamtök Íslands

Skrifstofan er opin sem hér segir: Skrifstofan opin milli kl. 8:00-16:00 frá mánudegi til föstudags. Lokað er í hádeginu milli kl. 12:00 - 12:30. Bændasamtök Íslands eru skráð sem félagasamtök í fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra. Kennitala BÍ er 631294-2279 og vsk-númer: 45164 Áfram


Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi