Fréttir
Hrossakjötskafli Kjötbókarinnar opnaður
Um miðjan september sl. var vefritið Kjötbókin, www.kjotbokin.is, formlega opnað, þegar fyrsti kaflinn um lambakjöt var gerður aðgengilegur.Nú er annar kafli tilbúinn en hann snýst um hrossakjöt.
Áfram
Umsóknir um lán eða styrki úr Stofnverndarsjóði íslenska hestakynsins
Fagráð í hrossarækt starfar samkvæmt 15 gr. búnaðarlaga nr. 70/1998. Fagráð fer, meðal annarra verkefna, með stjórn Stofnverndarsjóðs sem starfræktur er samkvæmt ákvæðum í sömu lögum og reglugerð nr. 470/1999 um sama efni.
Áfram
Fjár- og stóðréttir haustið 2011
Eins og undanfarin ár hafa Bændasamtökin tekið saman lista yfir helstu fjárréttir og stóðréttir á landinu á komandi hausti. Samkvæmt upplýsingum Bændasamtakanna verða fyrstu fjárréttir haustsins laugardaginn 3. september nk. en þá verður réttað á sex stöðum norðanlands, í Eyjafirði, Skagafirði og Húnavatnssýslum. Fyrsta stóðrétt haustsins verður einnig sama dag, Miðfjarðarrétt í Miðfirði í Vestur-Húnavatnssýslu.
Áfram
Kynbótahross á HM 2011 í Austurríki
Eftirfarandi kynbótahross og knapar hafa verið valin til þátttöku á HM í Austurríki fyrir Íslands hönd.
Áfram
Landsmót á Vindheimamelum
Nú er ljóst að 249 kynbótahross náðu lágmörkum til þátttöku í einstaklingssýningum landsmóts, um 42 klukkustundir myndi taka að dæma þau öll á Vindheimamelum. Ekki munu þau þó mæta öll til kynbótadóms á mótinu. Einn hestur hefur áður tekið þátt í elsta flokki á landsmóti og á því ekki þátttökurétt, líklegt er ...
Áfram
Alþjóðleg ráðstefna um meðferð og aðbúnað hrossa
Alþjóðlega NJF-ráðstefnan "Housing and management of horses in Nordic and Baltic climate" verður haldin á Hótel Loftleiðum dagana 6. og 7. júní nk. Ráðstefnan er ætluð öllu áhugafólki um hross og hestamennsku.
Áfram
Frestun á fundum um hrossarækt og hestamennsku
Vegna veðurs verður almennum fundum um málefni hrossaræktar og hestamennsku sem halda átti í vikunni frestað fram í næstu
Áfram
Hrossarækt og hestamennska
Almennir fundir um málefni hrossaræktar og hestamennsku verða haldnir á eftirtöldum stöðum í vikunni.
Þriðjudaginn 1. mars. Hvanneyri, Borgarfirði.
Áfram
Hrossarækt og hestamennska
Almennir fundir um málefni hrossaræktar og hestamennsku verða haldnir á eftirtöldum stöðum á næstu vikum. Allir fundirnir hefjast kl. 20:30
Áfram
Fréttir frá Fagráði í hrossarækt
Fundur var haldinn í Fagráði í hrossarækt þann 17. desember síðastliðinn, að vanda var margt tekið þar til umræðu en fundargerðir fagráðs eru aðgengilegar á heimasíðu BÍ www.bondi.is undir Hrossarækt.
Það sem m.a. var tekið fyrir á fundinum var eftirfarandi:
1. Stefnt er á að halda alþjóðlegt námskeið fyrir unga (18-25 ára) sýnendur kynbótahrossa í vor.
Áfram
Ráðstefnan Hrossarækt 2010 - 20. nóvember
Ráðstefnan Hrossarækt 2010 verður haldin á Hótel Sögu, laugardaginn 20. nóvember og hefst kl. 13:00. Ráðstefnan er öllum opin sem láta sig íslenska hrossarækt varða jafnt fagfólki sem áhugamönnum. Ráðstefnustjóri er Víkingur Gunnarsson.
Áfram
Síðsumarsýning kynbótahrossa á Hellu 13. – 20. ágúst.
Vegna þeirra aðstæðna sem uppi eru í hrossahaldi landsmanna, hefur verið ákveðið að vel athuguðu máli, að hætta að sinni við þá nýbreytni og tilraun sem til stóð að framkvæma
Áfram
Afkvæmasýningar stóðhesta á árinu 2010
Vegna frestunar landsmóts hestamanna hefur fagráð í hrossarækt ákveðið eftirfarandi:
Ef áhugi stóðhestseigenda er fyrir hendi verður boðið uppá hefðbundnar afkvæmasýningar stóðhesta á viðburðunum sem áætlaðir eru um verslunarmannahelgina, Fákaflugi í Skagafirði og Hestafjöri 2010 á Gaddstaðaflötum.
Áfram
Breyttar dagsetningar kynbótasýninga næstu mánuði
Á fundi Fagráðs í hrossarækt fimmtudaginn 3. júní voru í mörgum tilfellum ákveðnar nýjar dagsetningar fyrir þær kynbótasýningar sem ráðgerðar eru á árinu. Breytingarnar eru tilkomnar vegna kvefpestar þeirrar sem nú herjar á hrossastofninn. Haldnir voru fjölmennir fundir á Norður- og Suðurlandi með fulltrúum búnaðarsambanda, hrossaræktendum og knöpum...
Áfram
Hrossaræktendur og knapar á Suður- og Suðvesturlandi
Fundur verður haldinn í félagsheimili Sleipnis á Selfossi annað kvöld, miðvikudagskvöldið 2. júní kl. 20:00. Fundarefnið er skipulag kynbótasýninga á Suður- og Suðvesturlandi það sem eftir lifir sumars.
Áfram
Frá hrossaræktarráðunauti Bændasamtaka Íslands
Sýningar kynbótahrossa eru í gangi þessa dagana víða um land. Afföll hrossa af sýningunum eru talsverð vegna hrossapestarinnar sem hrjáir hrossastofninn. Ekki þótti fært að seinka sýningunum með því hefði...
Áfram
Tilkynning frá hrossaræktarráðunauti
Varla hefur hún farið framhjá nokkrum hestamanni sú kvefpest sem þessa dagana herjar á hrossastofninn. Ljóst er að pestin er mun alvarlegri en í fyrstu var talið og virðist hrossum mjög hætt við að slá niður ef ekki er varlega farið, þó menn telji einkenni horfin.
Áfram
Áríðandi tilkynning til eigenda útigangshrossa
Eigendur útigangshrossa um allt land þurfa að búa sig undir verja hross sín fyrir öskufalli. Of seint er að bregðast við eftir að umtalsvert öskufall er skollið á.
Miðað við veðurspá fyrir næstu daga er mest hætta á öskufalli í Rangárvallasýslu en hrossaeigendur á öllu Suður- og Suðausturlandi þurfa að vera í viðbragðsstöðu.
Áfram
Mikilvægt að allir bændur fylgist með áhrifum eldgossins
Bændur á Suðurlandi og austur í Skaftafellssýslum standa nú í ströngu vegna gossins í Eyjafjallajökli og afleiðinga þess. Bændasamtökin hafa komið á fót viðbragðshópi sem í eru starfsmenn og stjórnarmenn og fundaði hann í gær. Ýmsar spurningar vakna eðlilega við hamfarir sem þessar, m.a. um áhrif öskufalls, mögulega flutninga á bústofni, tryggingamál, fóðurbirgðir og flutninga.
Áfram
Sláturhúsum er óheimilt að taka við ómerktum hrossum eftir 1. apríl 2010
Reglugerð um einstaklingsmerkingar búfjár tók gildi árið 2005 þar sem m.a. er kveðið á um að skylt sé að skrá og einstaklingsmerkja öll hross eldri en 10 mánaða. Í byrjun voru hross fædd fyrir árið 2003 undanþegin merkingarskyldu en nú hefur sú undanþága verið felld úr gildi.
Áfram
Hrossaræktarfundir 15. og 16. mars
Í næstu viku verða haldnir eftirtaldir fundir um málefni hrossaræktarinnar.
Fundirnir hefjast kl. 20:30.
Áfram
Íþróttadómar FEIF-landa í WorldFeng
Íþróttadómar allra FEIF-landa (alþjóðasamtök eigenda íslenskra hesta) er nú að finna í WorldFeng. Um er að ræða íþróttadóma frá öllum aðildarlöndum FEIF, sem eru 18 talsins. Upplýsingar um íþróttadóma verða lesnir inn vikulega í WorldFeng. Á ráðstefnu FEIF, sem haldin var í Danmörku í síðasta mánuði, kom fram að innlestur dómsniðurstaðna frá löndum FEIF verði eitt af forgangsverkefnum á þessu ári hvað varðar þróun á WorldFeng
Áfram
Hrossaræktarfundir 8. - 10. mars
Í vikunni verða haldnir eftirtaldir fundir um málefni hrossaræktarinnar og hefjast þeir allir kl. 20:30.
Áfram
Hrossaræktarfundir
Almennir fundir um málefni hrossaræktarinnar verða haldnir á eftirtöldum stöðum á næstu vikum. Allir fundirnir hefjast kl. 20:30.
Áfram
Réttir haustið 2009 - uppfært og leiðrétt
Ólafur R. Dýrmundsson, ráðunautur Bændasamtaka Íslands, hefur tekið saman eftirfarandi lista um fjár- og stóðréttir haustið 2009. Almennt má segja að réttir séu á svipuðum tíma og í fyrra. Þá fylgir þessum lista yfirlit yfir helstu réttir í landnámi Ingólfs Arnarsonar haustið 2009.
Áfram
Ráðstefna um Sauðárkrókshrossin -21. mars
Sögusetur íslenska hestsins stendur fyrir ráðstefnu um Sauðárkrókshrossin, laugardaginn 21. mars 2009. Á ráðstefnunni verða flutt fróðleg erindi um Sauðárkróksræktunina, áhrif hennar á íslenska hrossastofninn og brautryðjandann Svein Guðmundsson. Ráðstefnan fer fram í Frímúrarahúsinu, Borgarmýri 1 á Sauðárkróki og hefst kl. 13.00.
Áfram
Málþing um ágrip á Hvanneyri - 13. mars
Í undirbúningi er málþing um leiðir til að koma í veg fyrir ágrip og aðra áverka við sýningar hrossa. Málþingið er haldið á vegum félagasamtaka í hrossarækt og hestamennsku, auk landbúnaðarháskólanna og Matvælastofnunnar.
Áfram
Út með ágrip – málþing 13. mars
Í undirbúningi er málþing um leiðir til að koma í veg fyrir ágrip og aðra áverka við sýningar hrossa. Málþingið er haldið á vegum félagasamtaka í hrossarækt og hestamennsku, auk landbúnaðarháskólanna og Matvælastofnunnar. Málþingið mun fara fram á Hvanneyri föstudaginn 13. mars nk. frá kl. 17-20.
Áfram
Hrossaræktarfundir í vikunni
Opnir fundir um málefni hrossaræktarinnar, allir velkomnir.
Mánudaginn 16. mars kl. 20:30 á Gistiheimilinu á Egilsstöðum
Þriðjudaginn 17. mars kl. 20:30 í félagsheimilinu Stekkhól í Hornafirði
Áfram
Hrossaræktarfundir framundan
Almennir fundir um málefni hrossaræktarinnar verða á eftirtöldum stöðum á næstu vikum. Frummælendur á fundunum verða Kristinn Guðnason formaður Fagráðs í hrossarækt og Félags hrossabænda og Guðlaugur V. Antonsson landsráðunautur í hrossarækt. Fundirnir eru öllum opnir sem láta sig málefni hrossaræktarinnar varða.
Áfram
Alþjóðlegt samstarf um DNA ætternisgreiningar á íslenska hestinum
Vinnufundur um DNA ætternisgreiningar á íslenska hestinum var haldinn 13. janúar sl. í Bændahöllinni í Reykjavík. Fyrir fundinum stóðu Bændasamtök Íslands og var tilgangur fundarins að finna bestu leiðir til að koma á samvinnu milli rannsóknarstofa milli landa og tryggja alþjóðlega samræmingu niðurstaðna.
Áfram
Fræðslufundur um heilbrigði íslenska hestsins - 27. janúar
Matvælastofnun heldur fræðslufund um heilbrigði íslenska hestsins þriðjudaginn 27. janúar 2009 kl. 15:00-16:00. Á fundinum verða teknir fyrir þættir sem ógnað geta heilbrigði og velferð hrossastofnsins og fjallað um viðbrögð við hugsanlegri vá. Þá verða nýleg dæmi um salmonellusýkingu og brot á dýraverndarlögum til umfjöllunar.
Áfram
Málstofa LbhÍ: Þróun kynbótamats íslenska hestsins
Næsta málstofa Landbúnaðarháskóla Íslands verður í Ásgarði á Hvanneyri mánudaginn 12. janúar klukkan 15. Þar mun Elsa Albertsdóttir doktorsnemi í kynbótafræði við LbhÍ flytja erindi en rannsóknarverkefni hennar ber heitið Samþætt kynbótamat íslenska hestsins - kynbóta og keppniseiginleikar.
Áfram
Stefnt að fríum aðgangi FEIF-félaga að WorldFeng
Jens Iversen, forseti FEIF, alþjóðasamtaka eigenda íslenskra hrossa, var í heimsókn á Íslandi dagana 19.-20. nóvember. Á ferð sinni fundaði Jens m.a. með Eiríki Blöndal, framkvæmdastjóra BÍ, og Jóni Baldri Lorange, forstöðumanni tölvudeildar, um viðaukasamning milli Bændasamtakanna og FEIF um WorldFengs-verkefnið.
Áfram
Haustfundur HEÞ - 3. des.
Hinn árlegi haustfundur Hrossaræktarsamtaka Eyfirðinga og Þingeyinga verður að þessu sinni haldinn í Funaborg Melgerðismelum miðvikudaginn 3. desember og hefst hann kl. 20:30.
Áfram
Góð sala á kjöti í september
Góð sala var á kjöti í september síðastliðnum. Samanborið við saman tíma í fyrra er aukningin 13,5%. Mest munar um 40% meiri sölu á svínakjöti en á sama tíma í fyrra. Þetta virðist mega skýra í ljósi þess að framleiðsla og sala svínakjöts í september 2007 var mun minni en í ágúst og október sama ár.
Áfram
Heimasvæði notenda í WorldFeng
Búið er að opna fyrir aðgang notenda WorldFengs að eigin heimasvæði sem kallað er Heimarétt. Í Heimaréttinni eiga að koma fram öll hross í eigu viðkomandi áskrifanda.Fjórar upplýsingasíður koma upp sem eru; hrossin mín, fargað, selt og útflutt. Allir eigendur sem eru áskrifendur að WorldFeng...
Áfram
Tilnefningar til ræktunarverðlauna
Fagráð í hrossarækt hefur fyrir hönd Bændasamtaka Íslands tilnefnt eftirtalda ræktendur/ræktunarbú til ræktunarverðlauna ársins 2008.
Áfram
Réttardagarnir haustið 2008
Listi yfir fjár- og stóðréttir fyrir haustið 2008 hefur verið gefinn út og eru fyrstu réttirnar. Fyrstu stóðréttirnar eru í Skagafirði laugardaginn 13. september, í Skarðarétt í Gönguskörðum og Staðarrétt, en listinn er hér eftirfarandi:
Áfram
Fjöldi manns við setningu Landsmóts hestamanna
Um sex þúsund manns voru viðstaddir formlega setningu Landsmóts hestamanna á Gaddstaðaflötum á Hellu í blíðskaparveðri í gærkvöldi. Um 500 knapar og hestar þeirra tóku þátt í hópreið allra hestamannafélaga á landinu en á eftir fánaberum riðu knapar í viðhafnarbúningi og fyrirsvarsmenn íslenskrar hestamennsku. Í fylkingarbrjósti voru einnig ráðherrar úr ríkisstjórninni, Geir H. Haarde...
Áfram
Kynbótasýningar um allt land
Sýningar kynbótahrossa eru hafnar af fullum krafti. Mikil skráning er á þær sýningar sem framundan eru enda hörð keppni um sæti á komandi landsmóti. Sýningar hafa nú þegar verið haldnar á Sauðárkróki, Reykjavík og í ...
Áfram
Sýningaáætlun kynbótahrossa 2008
Fyrsta kynbótasýning ársins verður haldin á Sauðárkróki og hefst þann 25. apríl n.k.
Áfram
Hrossaræktin 2007
Upplýsingar um hrossaræktina 2007 eru aðgengilegar á pdf-skjölum hér á vefnum. Greinar eftir Guðlaug V. Antonsson landsráðunaut í hrossarækt fjalla um skýrsluhaldið, Um er að ræða mikið töfluverk en einnig fylgja með mikið af ljósmyndum sem teknar eru af Eiríki Jónssyni.
kynbótamat og kynbótasýningar ársins 2007.
Áfram
Opnir hrossaræktarfundir 10. mars - 3. apríl
Opnir fundir um málefni hrossaræktarinnar verða haldnir á næstunni, á eftirtöldum stöðum: Mánudaginn 10. mars, Ljósvetningabúð, Þingeyjarsýslu, kl. 20:30, þriðjudaginn 11. mars, Reiðhöllinni, Sauðárkróki, kl. 20:30, miðvikudaginn 12. mars, Sjálfstæðissalnum, Blönduósi, kl. 20:30.
Áfram
Kynbótastarf í hrossarækt
Opinbert ræktunarstarf í hrossarækt á sér lagastoð í Búnaðarlögum (nr. 70/1998) en þar kemur fram að Bændasamtök Íslands hafa á hendi faglega yfirumsjón með því starfi í umboði og samkvæmt samningi við landbúnaðarráðherra en hann hefur á hendi yfirstjórn allra mála sem lögin taka til.
Áfram