Upplýsingar

Upplýsingar

Helstu starfsmenn BÍ sem sinna ráðgjöf í sauðfjárrækt eru:

A. Ræktunarstarf: Landsráðunautur: Jón Viðar Jónmundsson.

Hefur umsjón með og ber ábyrgð á ræktunarstarfi í sauðfjárrækt, s.s.uppgjöri skýrsluhalds, afkvæmarannsóknum, mati á kynbótagildi gripa og veitir almenna ráðgjöf um fjárrækt og kynbætur. Hann er annar tveggja fulltrúa Bændasamtakanna í Fagráði í sauðfjárrækt.
jvj@bondi.is


B. Sauðfjárrækt - gæðastýring: Umsjónarmaður: Borgar Páll Bragason.
Hefur umsjón með þætti Bændasamtakanna í framkvæmd gæðastýringar í sauðfjárrækt, s. s. útgáfu og uppfærslu eyðublaða, viðhaldi Gæðahandbókar og námskeiðahald fyrir nýja þátttakendur.
bpb@bondi.is


C. Sauðfjárrækt - beit og landnýting: Ráðunautur: Ólafur R. Dýrmundsson.
Hefur með höndum ráðgjöf um aðbúnað sauðfjár, einkum beit, afréttamál og landnýtingu.
ord@bondi.is .

 

Fagráð í sauðfjárrækt
Fagráð í sauðfjárrækt starfar skv. 21. gr. samþykkta BÍ. Hlutverk þess er að móta stefnu í kynbótastarfi, fræðslumálum og rannsóknum í sauðfjárrækt og að fjalla um önnur fagleg málefni sem vísað er til ráðsins. Undir fagráði eru starfandi tveir vinnuhópar: Ræktunarhópur fagráðs og faghópur um rannsóknar- og kennslumál.

Tilnefndir af Landssamtökum sauðfjárbænda: Fanney Ólöf Lárusdóttir (formaður), Baldur Grétarsson og Þórarinn Ingi Pétursson.
Tilnefndir af Bændasamtökum Íslands: Jón Viðar Jónmundsson (ritari) og Jóhannes Sigfússon (varaformaður).
Fundi fagráðs situr einnig Emma Eyþórsdóttir dósent við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri og brautastjóri búvísindadeildar skólans.



Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi