Fóðurmat
Síðustu áratugi liðinnar aldar var fóður fyrir jórturdýr metið í fitufóðureiningum (F.f.e) hér á landi. Fitufóðureiningin byggir á rannsóknum um nýtingu hreinna næringarefna í fóðri við fitun á nautgripum í vexti. Helsti ágalli fitufóðureiningarinnar var að með henni var orkugildi í gróffóðri til mjólkurframleiðslu vanmetið. Undir lok níunda áratugar aldarinnar sem leið vaknaði áhugi á Norðurlöndum um að þróa sameiginlega fóðurmatsaðferð til að meta fóður fyrir mjólkurkýr. Afrakstur þeirrar samvinnu varð s.k. AAT/PBV aðferð til að meta prótein í fóðri jórturdýra, en samtímis var tekin í notkun ný eining til að meta orku FEm (virk orka til mjólkurframleiðslu), sem byggir á Holleskri aðferð. Frá ársbyrjun 1996 voru þessar aðferðir teknar í notkun hér á landi. Í tveimur greinum er þessum aðferðum við mat á fóðri fyrir nautgripi stuttlega lýst.
Orkumat í fóðri nautgripa (FEm) pdf útgáfa - 128 k
Próteinmat í fóðri nautgripa (AAT-PBV) pdf útgáfa - 104 k
Kolvetni í fóðri jórturdýra pdf útgáfa - 14.3 Mb
Melting frumuveggjakolvetna (NDF) í fóðri jórturdýra pdf útgáfa - 11.7 Mb
_______________________________________________________________________________________________
Frá miðju ári 2002 gerðust Bændasamtökin aðilar að samnorrænu verkefni um þróun nýs fóðurmatskerfis fyrir jórturdýr, ásamt ráðgjafarstofnunum í nautgriparækt í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Nýja fóðurmatskerfið, sem hlaut nafnið NorFor er nú tilbúið til notkunar og er smám saman verið að innleiða það í þátttökulöndunum. Um nýja fóðurmatskerfið er fjallað í nokkrum greinum.
Nýtt fóðurmatskerfi fyrir nautgripi - NorFor (1) 04-2005
Fóðurefnagreining - kjarnfóður - NorFor (2) 10-2005
Fóðurefnagreining - gróffóður - NorFor (3) 11-2005
Melting fóðurs í vömb - NorFor (4) 12-2005
Orku- og próteingildi í fóðri - NorFor (5) 04-2006
Átgeta og fóðurát - NorFor (6) 09-2006
Grófleiki og tyggitími fóðurs - NorFor (7) 06-2008
Fóðuráætlanagerð með NorFor - NorFor (8) 01-2009
NorFor - öflugt verkfæri til að auka hagkvæmni í fóðrun og mjólkurframleiðslu 05-2008
Fylgiseðill með NorFor-sýnum 2011
NorFor-heftið, upplýsingabæklingur um nýja fóðurmatskerfið (smellið á myndina til að opna pdf)
Notendahandbók fyrir Tine Optifôr (smellið á myndina til að opna pdf)