Prenta síðu

Um viðburð

19. mars 2010

Aðalfundur Beint frá býli - 19. mars

Mynd með frétt

Stjórn Beint frá býli hefur ákveðið að halda aðalfund félagsins föstudaginn 19. mars nk. að Hótel Hamri í Borgarbyggð. Fyrirlesari á fundinum verður, Skotinn, Donald MacPherson. Hann er bóndi á Castlehills – býlinu sem er sunnarlega á austurströnd Skotlands. Þar rekur hann nautgripabú með áherslu á kjötfarmleiðslu undir sérstöku gæðamerki og selur beint frá býli eftir ýmsum leiðum, s.s. á heimasíðu, mörkuðum og í búðum.

Hann þekkir vel til sölu á vörum beint frá býli í Skotlandi og hefur unnið mikið að þeim málum, auk þess að kynna sér slíkt í öðrum löndum. Þá hefur hann m.a. unnið á vegum stjórnvalda við að leiðbeina um og þróa hugmyndina “beint frá býli.” Heimasíða hans er: www.wellhungandtender.co.uk.

Fundarboð og nánari dagskrá verður send síðar.

Til baka

Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi