Prenta síðu

Um viðburð

11. mars 2010

Námskeið í stofnun matvælafyrirtækja hjá Sýni - 11.-12. mars

Mynd með frétt

Námskeiðið fer fram dagana 11. og 12. mars  og er ætlað að svara hinum ýmsu spurningum varðandi kröfur sem gerðar eru til matvælafyrirtækja bæði hvað varðar gæði, öryggi og hollustu matvæla svo og húsnæði og búnað.

Námskeiðið er ætlað sprotafyrirtækjum, einstaklingum sem eru í leit að nýjum leiðum, matvælaframleiðendum í héraði, ferðamannaþjónustu og öðrum sem hafa áhuga á matvælaframleiðslu.

Meginmarkmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist yfirsýn og grunnskilning á:

-Lagalegum kröfum við stofnun matvælafyrirtækis
-Gæðamálum, innra eftirliti og úttektum
-Öryggi matvæla og hreinlæti
-Húsnæði, innréttingum og þrifavænlegri hönnun
-Vöru-og hráefnaþekkingu og innkaupum
-Pökkunaraðferðum, vali á umbúðum og umbúðamerkingum
-Vinnuvernd og vellíðan á vinnustöðum
-Umhverfi matvælafyrirtækja og samtök fyrirtækja
-Styrkumsóknum t.d. vegna vöruþróunar

Nánari upplýsingar á heimasíðu Matvælaskólans hjá Sýni, www.syni.is eða í síma 512-3380.

Námskeiðið er niðurgreitt af Starfsmenntaráði.

Til baka

Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi