Prenta síðu

Um viðburð

23. febrúar 2010

Námskeið: Nýting belgjurta til að auka frjósemi og afurðargetu jarðvegs - 23. febrúar

Mynd með frétt

Námskeið í nýting belgjurta til að auka frjósemi og afurðargetu jarðvegs, verður haldið á vegum Endurmenntunar Landbúnaðarháskóla Íslands frá 9. febrúar til 13. apríl nk. og er ætlað fyrir bændur og aðra landeigendur.

Námskeiðið er byggt upp á eftirfarandi þremur þáttum:

1. hluti:
-Byggingarefni lífvera og hvernig þeim efnum  er komið  inn í lífkeðjuna.
-Ferlar helstu áburðarefna í jarðvegi og lífríki.
-Lífrænt efni ræktað á staðnum miðað við aðflutt lífrænt efni
-Umsetning  og umsetningarhraði plöntunæringarefna í jarðvegi.
-Mismunandi gæði lífræns efnis með tilliti til umsetningarhraða.

2. hluti:
-Ferill níturbindingar
-Afkastageta einstakra níturbindandi tegunda.
-Hvernig á að hámarka níturbindingu einstakra tegunda.
-Meðhöndlun rótarhnýðisbaktería og tengsl þeirra baktería við plöntutegund.
-Önnur áhrif belgjurta á framleiðslugetu svæðis.

3. hluti:
-Ræktun belgjurta. Ræktunartækni, ending.
-Bein nýting belgjurta. Fóður. Beit og sláttur
-Flutningur efna frá belgjurtum yfir í aðrar ræktunarplöntur
-Samantekt

Kennari: Jón Guðmundsson,
Stund og staður: 
þri. 9. feb. Kl. 13:00-15.30 (3,5 kennslustundir), á Hvanneyri (nánar síðar).
Þri. 23. feb. Kl 13:00-15:30 (3,5 kennslustund), á Hótel Heklu á Brjánsstöðum.
þri. 9. mars  Kl. 13:00-15.30 (3,5 kennslustundir), í Búgarði á Akureyri.
Þri. 13. apríl  Kl. 13:00-15.30 (3,5 kennslustundir), á Egilsstöðum (nánar síðar).
Verð: 6.000 kr.
 

Skráning: endurmenntun@lbhi.is eða í síma 433 5000.   

Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 2000 kr (óafturkræft) á reikninginn 354-26-4237, kt. 411204-3590.  Kvittun með skýringu send á endurmenntun@lbhi.is.

Til baka

Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi