Mjaltaþjónar og mjólkurgæði - námskeið fyrir kúabændur - 15. mars
Námskeiðið um mjaltaþjóna og mjólkurgæði verður haldið dagana 15. til 19. mars nk. Námskeiðið er haldið í samstarfi við Samtök Afurðastöðva í Mjólkuriðnaði og er ætlað bændum sem nota mjaltaþjóna
Fjallað verður um mjaltir, grunnkerfi mjaltaþjónanna og erlenda reynslu af ólíkum mjaltaþjónum. Sérstök áhersla verður lögð á mjólkurgæði, m.a. frjálsar fitusýrur (FFA) í mjólk, tengsl þeirra mjólkurgæði og áhrif of hárra gilda á vinnslu mjólkur og mjólkurafurða. Ennfremur farið yfir mikilvægi þess að horfa til efnainnihalds mjólkurinnar og tengsl við afkomuna. Þá verða kynntar breytingar á mjólkurgæðakröfum sem tóku gildi 1. febrúar sl. Fyrirlesarar á námskeiðinu verða auk Snorra Sigurðssonar sérfræðings í mjólkurgæðum og mjaltatækni hjá LbhÍ, mjólkureftirlitsmenn á viðkomandi námskeiðssvæði auk fulltrúa frá viðkomandi afurðastöð.
Námskeiðið verður haldið á eftirfarandi stöðum:
Mán. 15. mars kl 10:00-16:30 (8 kennslustundir) Árhúsum á Hellu
Snorri Sigurðsson LbhÍ, Gunnar Kjartansson SAM o.fl..
Þri. 16. mars kl 10:00-16:30 (8 kennslustundir) Austurstofa í Ásgarði á Hvanneyri
Snorri Sigurðsson LbhÍ, Hans Egilsson SAM o.fl..
Mið. 17. mars kl 10:30-17:00 (8 kennslustundir) á Löngumýri í Skagafirði
Snorri Sigurðsson LbhÍ, Hans Egilsson SAM o.fl..
Fim. 18. mars kl 10:00-16:30 (8 kennslustundir) í Eyjafirði. Nánari staðsetning tilkynnt síðar.
Snorri Sigurðsson, Kristján Gunnarsson SAM o.fl..
Fös. 19. mars kl 10:30-17:00 (8 kennslustundir) Gistihúsið Egilsstöðum
Snorri Sigurðsson, Kristján Gunnarsson SAM o.fl.
Umsjón og kennsla: Snorri Sigurðsson, sérfræðingur hjá LbhÍ, Gunnar Kjartansson, Kristján Gunnarsson og Hans Egilsson, mjólkureftirlitsmenn frá SAM.
Verð: 11.800 kr (kennsla, gögn og veitingar).
Skráningar: á endurmenntun@lbhi.is eða í síma 433 5000. Fram komi nafn, kennitala, heimilisfang, netfang og sími.
Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 2800 kr (óafturkræft) á reikninginn 354-26-4237, kt. 411204-3590. Skrá nafn þátttakanda í skýringar og senda kvittun á endurmenntun@lbhi.is