Fundur: Ungt fólk gegn aðild Íslands að ESB - 6. febrúar
Laugardaginn 6. febrúar verður stofnuð hreyfing ungs fólks sem stendur gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu. Stofnfundurinn verður haldinn í sal Þjóðminjasafnsins kl. 13.00-16.00 og er hann opinn öllum.
Dagskrá fundarins verður:
1.Formaður undirbúningsnefndar setur fundinn og gerir tillögu að fundarstjóra
2.Tillaga undirbúningsnefndar að nafni félagsins lögð fram.
3.Tillaga undirbúningsnefndar að lögum lögð fram.
4.Kosning stjórnar félagsins.
5.Ávarp heiðursgesta
6.Önnur mál
Fundarstjóri verður Árni Árnason, landsforseti JCI.
Félagið er opið öllum á aldrinum 16-36 ára og nauðsynlegt er að skrá sig sem stofnfélaga í gegnum heimasíðuna www.isafold.bbp.is.
Framboð til stjórnar og lagabreytingatillögur verða að berast Páli Vilhjálmssyni í kjörstjórn pallvilh@gmail.com viku fyrir fundinn.
Skemmtun verður um kvöldið.