Námskeið LbhÍ: Lífræn aðlögun sauðfjárræktar - 26. janúar
Námskeið Endurmenntunar Landbúnaðarháskóla Íslands haldið í samstarfi við Vottunarstofuna Tún ehf. Námskeiðið er ætlað þeim sem stunda sauðfjárrækt í meira eða minna mæli og hafa áhuga á að kynna sér möguleika sína á upptöku lífrænna aðferða og á markaðssetningu lífrænna sauðfjárafurða.
Dagskrá:
12.45-13.30 Aðlögunarferlið – yfirlit um markmið og leiðir - Dr. Gunnar Á. Gunnarsson, framkvæmdastjóri Vottunarstofunnar Túns.
13.35-14.20 Uppruni, aðlögun og aðbúnaður sauðfjárstofns - Dr. Ólafur R. Dýrmundsson, landsráðunautur Bændasamtaka Íslands.
14.25-15.10 Beit, fóðuröflun, fóðrun og heilbrigði - Dr. Ólafur R. Dýrmundsson, landsráðunautur Bændasamtaka Íslands.
15.25-16.10 Reynsla bónda af lífrænum sauðfjárbúskap - Helga Þórðardóttir bóndi á Mælifellsá og Friðrik Jóhannsson bóndi á Brekkulæk
16.15-17.00 Eftirlit, vottun, markaðssetning og kostnaður - Dr. Gunnar Á. Gunnarsson, framkvæmdastjóri Vottunarstofunnar Túns.
Á námskeiðinu verður fjallað um helstu þætti lífrænnar aðlögunar, einkum fóðurframleiðslu, aðbúnað og heilbrigði sauðfjárins. Fjallað verður um vandamál sem tengjast húsakosti, beitarstjórnun, heyöflun og sjúkdómum, og gerð grein fyrir fenginni reynslu bænda og dýralækna af lausn þeirra með náttúrulegum, fyrirbyggjandi aðferðum. Þá verður fjallað um skýrsluhald, eftirlit og vottun lífrænnar sauðfjárræktar, og aðra þætti sem huga þarf að við markaðssetningu lífrænna afurða.
Stund og staður: fim. 26. jan., frá 12:45-17:00 (5,5 kennslustund) á Gauksmýri í Húnaþingi vestra.
Verð: 14.000 kr (kennsla, gögn og veitingar) Skráningar: endurmenntun@lbhi.is eða í síma: 433 5000. Skráningarfrestur til 21. jan.