Námskeið LbhÍ: Lífræn jarðyrkja: Útiræktun á fóðri og matjurtum - 27. janúar
Námskeið Endurmenntunar Landbúnaðarháskóla Íslands haldið í samstarfi við Vottunarstofuna Tún ehf. Námskeiðið er ætlað þeim sem stunda lífræna jarðyrkju í meira eða minna mæli og hafa áhuga á að kynna sér möguleika sína á upptöku lífrænna aðferða til fóðuröflunar fyrir búfé eða til ræktunar á matjurtum.
Dagskrá:
12.45-13.30 Aðlögunarferlið – yfirlit um markmið og leiðir - Dr. Gunnar Á. Gunnarsson, framkvæmdastjóri Vottunarstofunnar Túns.
13.35-14.20 Mat á ástandi jarðvegs, nýting næringarefna og aðflutt næringarefni - Dr. Ólafur R. Dýrmundsson, landsráðunautur Bændasamtaka Íslands.
14.25-15.10 Sáðvara, önnur aðföng, umbúnaður og varnir, skiptiræktun - Gunnþór Guðfinnsson, garðyrkjufræðingur.
15.25-16.10 Reynsla bónda af lífrænni ræktun: Vandamál og úrlausnir - Guðfinnur Jakobsson, bóndi í Skaftholti.
16.15-17.00 Eftirlit, vottun, markaðssetning og kostnaður - Dr. Gunnar Á. Gunnarsson, framkvæmdastjóri Vottunarstofunnar Túns.
Á námskeiðinu verður fjallað um helstu þætti lífrænnar aðlögunar, einkum jarðveg og meðferð hans. Rætt verður um jarðvegsgreiningar, hagkvæma nýtingu næringarefna sem til falla t.d. grænáburðarplöntur, búfjáráburð og safnhaugagerð. Þá er rætt um þörf fyrir aðfengin næringarefni, sáðvöru og önnur aðföng, og hvernig brugðist er við helstu vandamálum í ræktun, s.s. skordýrum, sveppum og samkeppnisplöntum (“illgresi”). Farið er í gegnum skiptiræktun og gerð sáðskiptaáætlana.
Þá verður fjallað um skýrsluhald, eftirlit og vottun lífrænnar ræktunar, og aðra þætti sem huga þarf að við markaðssetningu lífrænna afurða.
Stund og staður: fös. 27. jan., 2012 frá 12:45-17:00 (5,5 kennslustund) að Stóra Ármóti.
Verð: 14.000 kr (kennsla, gögn og veitingar) Skráningar: endurmenntun@lbhi.is eða í síma: 433 5000. Skráningarfrestur til 22. jan.
Minnum að sjálfsögðu á Starfsmenntsjóð bænda – sjá nánar á www.bondi.is