Námskeið LbhÍ: Tré og runnar I - 7. september
Markmið námskeiðsins er að nemandi kunni skil á þeim trjátegundum sem nota má í garðrækt, skógrækt og landgræðslu hér á landi. Kunni íslensk og latnesk heiti á þeim tegundum sem fjallað er um. Kunni íslensk og latnesk heiti á þeim ættum og ættkvíslum sem fjallað er um. Þekki tegundirnar og viti hvernig þær líta út í aðalatriðum. Viti um helstu eiginleika hverrar tegundar, kröfur til jarðvegs og birtu og möguleika á notkun. Fái innsýn á skiptingu Íslands í mismunandi ræktunarsvæði.
Fjallað um helstu tegundir trjáa og runna sem nota má í garðrækt, skógrækt og landgræðslu. Íslensk og latneskt heiti og skipan tegunda í ættir og ættkvíslir. Skipting Íslands í mismunandi ræktunarsvæði fyrir trjágróður.
Þeir nemendur sem sækja þetta námskeið hjá Endurmenntun LbhÍ sækja sama námskeið og þeir nemendur sem skráðir eru í starfsmenntanám við Landbúnaðarháskóla Íslands. Nemandi sem uppfyllir öll skilyrði til próftöku verður gefinn kostur á að sitja próf í lok námskeiðsraðar, fös. 10. des, kl. 9:00-12:00.
Námsefni: Ólafur S. Njálsson 2005. Tré og runnar 1.-4. Fjölrit útg. af höf.
Kennari: Jón Kr. Arnarsson garðyrkjufræðingur við LbhÍ.
Tími: Þri. 7. sept, kl. 12:45-15.45, fim. 16. sept, kl. 12:45-15:45, fim. 23. sept. kl. 12:45-14:10, fim. 30. sept, kl. 12:45-14:10, þri. 5. okt, kl. 12.45-15:45, þri. 12. okt, kl. 12:45-14:10, þri. 19. okt, kl. 12:45-14:10, mán. 1. nóv. kl. 12:45-15:45, þri. 9. nóv, kl. 12:45-15:45, þri. 16. nóv, kl. 12:45-15:45 og þri. 23. nóv. kl. 12:45-15:45 (48 kennslustundir) hjá LbhÍ á Reykjum, Ölfusi. Námskeiðið er á framhaldsskólastigi og má meta til 2 eininga sem hluta af námi í garðyrkjufræðum.
Verð: 36.000 kr.
Til baka