Námskeið LbhÍ: Lífræn ræktun og vistvæn garðrækt - 6. september
Markmið námskeiðsins er að nemandi fái innsýn í umhverfismál almennt til að fá aukinn skilning á; af hverju Lífræn ræktun og vistvæn garðrækt. Að nemandi sé fær um að skilgreina mismunandi ræktunarstefnur, leiðbeina almenningi um jarðgerð heima fyrir, leiðbeina almenningi um lífræna ræktun og geti nýtt sér upplýsingar um þessi málefni.
Fjallað er í grófum dráttum um umhverfismál almennt. Fjallað verður almennt um jarðgerð m.a. verður farið í blöndun og meðferð safnhauga. Heimajarðgerð og möguleikar þar að lútandi verða skoðaðir. Notkunarmöguleikar moltu kynntir. Fjallað verður um stefnur og aðferðir í lífrænni ræktun. Farið yfir löggjöf lífrænnar landbúnaðarframleiðslu og vottun hennar. Fjallað verður um grundvallaratriði vistvænnar garðræktar s.s. valkosti við notkun áburðar, varnarefna ofl. Lögð er áhersla á umhverfið sem auðlind sem nýta verður á skynsamlegan hátt. Inngangur að hringrásarferlum næringarefna og orku. Nemendur vinna reglulega verkefni tengd námsefninu.
Þeir nemendur sem sækja þetta námskeið hjá Endurmenntun LbhÍ sækja sama námskeið og þeir nemendur sem skráðir eru í starfsmenntanám við Landbúnaðarháskóla Íslands. Nemandi sem uppfyllir öll skilyrði til próftöku verður gefinn kostur á að sitja próf í lok námskeiðsraðar, mið. 1. des, kl. 9:00-12:00
Námsefni: Stuðst verður m.a. við: Umhverfisbókin, Mál og menning 1996, Lífrænn landbúnaður - kennsluefni fyrir búnaðarnám, Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri 1999. Ökologisk landbruk - Landbruksforlaget 1989. Biologisk-dynamisk dyrkning, Emil Mohr og Einar Grapperud,1985. Kompost boka, Landbruksforlaget 1992. Maren Korsgaard, Hanne Lindhard Pedersen 2007. Frugt og Bær, 1. útg. Ljósritað ítarefni úr tímaritum, innlendum sem erlendum. Lög og reglugerðir um lífræna landbúnaðarframleiðslu. Lög og reglugerðir um vistvæna landbúnaðarframleiðslu.
Kennari: Guðrún Helga Guðbjörnsdóttir brautarstjóri garðyrkjuframleiðslubrautar við LbhÍ.
Tími: Mán. 6. sept. kl. 9:00-15:45, mið. 8. sept, kl. 9:00-12:00, fim. 16. sept, kl. 9:00-12:00, fim. 23. sept, kl. 9:00-12:00, fim. kl. 30. sept, kl. 9:00-12:00, fim. 7. okt, kl. 9:00-15:45, fim. 14. okt, kl. 9:00-14:10, fim. 21. okt, kl. 9:00-14:10, þri. 26. okt, kl. 12:45-15:45, þri. 2. nóv, kl. 12:45-14:10, fim. 4. nóv, kl. 9:00-12:00, fim. 11. nóv, kl. 9:00-14:10, fim. 18. nóv. kl. 9:00-14:10 og fim. 25. nóv. kl. 9:00-14:10 (72 kennslustundir) hjá LbhÍ á Reykjum, Ölfusi. Námskeiðið er á framhaldsskólastigi og má meta til 3 eininga sem hluta af námi í garðyrkjufræðum.
Verð: 54.000 kr.
Til baka