Prenta síðu

Um viðburð

4. september 2010

Námskeið LbhÍ: Sveppir og sveppatínsla - 4. september

Mynd með frétt

Námskeiðið er blanda af fyrirlestri og verklegri kennslu. Nemendur fara út í nærliggjandi skóglendi ásamt kennara og fá aðstoð og kennslu við þær aðferðir sem notaðar eru til að tína matarsveppi. Þá læra nemendur að greina og hreinsa sveppi. Fjallað verður um helstu geymsluaðferðir sveppa og eins helstu nýtingarmöguleika.

Nemendur mæta í fatnaði sem hæfir veðri, taka með sér fötur/körfur til að tína sveppina í, heppilegan hníf fyrir hreinsun og ílát fyrir uppskeruna til að taka með heim. Nemendur þurfa að vera undir það búnir að keyra á milli tínslustaða, þó ekki lengur en í 30 mín frá upphafsstað.

Kennari: Bjarni Diðrik Sigurðsson skógfræðingur og prófessor við LbhÍ.

Tími: Lau. 4. sept. kl. 10:00-16:00 (7,5 kennslustundir) hjá LbhÍ á Reykjum og nágreni.

Verð: 9.900kr (innifalið eru námsögn og kennsla, en engar veitingar, þátttakendur eru því hvattir til að taka með sér nesti)

Til baka

Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi