Nautastöð BÍ

    Nautastöð BÍ

    Nautastöð Bændasamtaka Íslands er á Hesti í Borgarfirði. Hún var formlega vígð 10. febrúar 2009. Árlega eru teknir á bilinu 120-170 sæðisskammtar úr nautum á stöðinni og rúmlega 50 þúsund eru sendir til frjótækna um allt land. Í Nautastöðinni er aðstaða eins og best verður á kosið en stöðin uppfyllir kröfur ESB um útflutning á nautasæði. 

    Árlega eru keyptir um 70 smákálfar að Nautastöð BÍ að Hesti.  Úr hverjum árgangi koma 22 til 30 naut til sæðistöku, önnur eru felld vegna ýmissa atriða s.s. að þau þroskist ekki, stökkva ekki eða mæður þeirra falla í kynbótamati.  Í stöðinni á Hesti eru 24 sæðisnautastíur, fjórar stíur fyrir uppeldið, sem geta tekið kálfa og svo einangunarstöð sem tekur 12 kálfa (og stundum fleiri).  Starfsmenn stöðvarinnar eru Sveinbjörn Eyjólfsson forstöðumaður og nautahirðir er Ingvar Þór Jóhannsson.

     

    Efni frá Nautastöðinni:

    14.2.2011
    Nýir nautkálfar komnir í Nautastöðina - pdf

    17.03.2009
    Fyrsti ungkálfahópurinn sem kom inn í nýju Nautastöðina á Hesti, alls 14 kálfar víðsvegar að af landinu, eru nú liðlega hálfnaðir með tímann í sóttkví. Á meðfylgjandi myndum má sjá að þeir þrífast vel og það fer býsna vel um þá. Þeir sem vilja kynna sér ættir og uppruna kálfanna geta gert það í Huppu en búsnúmer Nautastöðvarinnar á Hesti er 2118411.

    25.11.2008 Nautamyndir 2006-2007 - PPT-skjal

    21.04.2008 Vinsælasta nautið

    18.04.2008  Lesa má skýrslu Sveinbjörns Eyjólfssonar um nautgripasæðingar 2007 hér. 



    Leturstærðir


    Leit og innskráning

    • English
    • Vefpóstur bondi@bondi.is
    Leitarvél

    Bændatorg

    Bændatorg



    Gleymt lykilorð?
    Nýr notandi
    Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi