Ræktunarstarf
Ræktunarstarf í nautgriparækt
Ræktunarstarf í nautgriparækt byggir að mestum hluta á skýrsluhaldi bænda. Upplýsingum um gripi er safnað í gegnum skýrsluhaldið og þær notaðar til að leggja mat á kynbótagildi gripana út frá skilgreindum kynbótamarkmiðum. Kynbótamarkmið í nautgriparækt í dag byggja að stærstum hluta á afurðagetu einstaklings þar sem próteinframleiðsla og mjólkurmagn er vegið saman. Aðrir þættir sem vega inn í kynbótaeinkunn eru júgur og spenabygging, frumutala (júgurheilbrigði), ending, frjósemi, mjaltir og skapgerð. Lesa má nánar um vægi einstakra eiginleika hér.
Skýrsluhaldið er í höndum einstakra bænda sem færa ætterni gripa og skrásetja afurðir. Héraðsráðunautar annast eftirlit með skýrsluhaldi heima í héraði og veita aðstoð varðandi færslu á mjólkurskýrslum og skráningu í MARK. Mánaðarlegt uppgjör mjólkurskýrslna fer fram hjá Bændasamtökum Íslands og eru niðurstöður skýrsluhaldsins birtar á vefnum eftir að uppgjöri hvers mánaðar er lokið. Sjá má niðurstöður skýrsluhaldsins hér.