Túnkort og skýrsluhald

Túnkort og skýrsluhald


Túnkort
Það er gömul og ný tugga að túnkort sé ein meginforsenda þess að skipuleggja og nýta land sitt með hagkvæmum hætti. Augljós kostur er td. að hafa túnkort við gerð áburðaráætlunar. Sumarið 2007 gerðu Bændasamtök Íslands samning við Loftmyndir ehf. um vefrænt aðgengi að myndkortasafni þeirra sem þekur orðið allt landið. Enn fremur útbjuggu Loftmyndir ehf. veflausn með teiknitólum sem veitir m.a.  möguleika á að hnita inn á myndirnar, punkta, línur og fláka.

Með myndkortunum og teiknitólunum sem eru aðgengileg þá geta ráðunautar teiknað túnkort af mikilli nákvæmni. Túnkortið verður á sama tíma til í gagnagrunni sem ráðunautar hafa alltaf aðgang að og því er hægt að breyta og laga túnkortin þegar þurfa þykir og prenta út. Útprentanir sem þessar er síðan hægt að nota sem vinnuplögg við ýmsar leiðbeiningar tengdar ræktunarstarfinu. Þegar túnkort hefur verið teiknað í túnkortagrunninn fá bændur aðgang að loftmynd með hnituðum túnum í jarðræktarforritinu Jörð.is.
Afnot af loftmyndum til túnkortagerðar kosta 13.923 kr + vsk fyrir hvert lögbýli frá 1. júlí 2011 - 30.júní 2012. Þar ofan á bætist síðan vinna ráðunauta við hnitun túna.



Túnkort af Stóra Ármóti


Ráðunautar hafa notað myndkortagrunninn frá haustinu 2007 til að mæla og staðsetja kornakra á landinu vegna úttekta á þróunar- og jarðabótum samkvæmt búnaðarlagasamningi. Einnig hefur grasrækt og grænfóðurrækt verið kortlögð frá árinu 2008. Staðsetningu kornakra ársins 2007 má sjá hér.

Túnkortagrunnur ráðunauta


Skýrsluhald í jarðrækt
Lykillinn að vel heppnaðri jarðrækt er að bóndi þekki sína jörð og yrki hana samkvæmt bestu mögulegu þekkingu. Hér er yfirleitt um reynsluvísindi að ræða. Skráning jarðræktarupplýsinga og notkun þeirra leiðir til næringarefnajafnvægis í jarðvegi og skynsamlegrar nýtingar áburðarefna. Gott skýrsluhald ætti því að hjálpa til við að hámarka hagkvæmni búrekstrarins.

Jörð.is er skýrsluhalds- og jarðræktarforrit Bændasamtaka Íslands.






 

 



Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi