Staðarval
Þættir sem æskilegt er að hafa í huga varðandi staðsetningu bygginga
• Eignaréttur, þ.e.a.s. hvort um er að ræða ríkisjarðir, því sækja þarf um leyfi fyrir slíkum framkvæmdum
• Fyrirhöguð starfsemi í húsinu
• Umfang starfseminnar
• Byggðastefna, framleiðsla í héraðinu og nánd við markað
• Jarðvegsgerð á grunnstæði
• Tegund húsgrunns
• Lagnir s.s. vatn, rafmagn og frárennsli
• Aðgengi véla, m.t.t. fóðurflutninga og haugtæmingar
• Aðgengi fyrir þjónustu, s.s. sláturhúsa- og mjólkurbíls
• Aðgengi fyrir skepnur og nálægð við beitarhaga
• Aðgengi fyrir ábúendur, s.s. fjarlægð frá íbúðarhúsi
• Fjarlægð frá öðrum húsum s.s. íbúðarhúsi, m.t.t. lyktarmengunar og ríkjandi vindáttar
• Landslag, m.t.t. fegurðar og að bygging falli inn í landslagið og sé í samræmi við aðrar byggingar á staðnum
• Veðurfar, s.s. snjóalög, áveður, vindar, reynsla staðarbúa
• Umhverfi
• Heildarsvipur bæjar, s.s staðsetning og lögun núverandi bygginga
• Smithætta milli bygginga, sérstaklega m.t.t. svína og alifugla
• Stækkunarmöguleikar
• Kröfur fjármögnunaraðila
• Lög og reglugerðir