Prenta síðu

Lesa frétt

4. júní 2010

Námskeið í gæðastýringu í sauðfjárrækt - 14. júní

Mynd með frétt

Fyrirhugað er að halda námskeið vegna gæðastýringar í sauðfjárrækt á  Stóra Ármóti, mánudaginn 14. júní, Hvanneyri, þriðjudaginn 15. júní og einhvers staðar á Norðurlandi/Austurlandi, föstudaginn 18. júní. Nánar auglýst síðar. 

Nýir þátttakendur í gæðastýringu í sauðfjárrækt þurfa að sækja um það til Matvælastofnunar á þar til gerðum umsóknareyðublöðum. Umsóknarfrestur er til 20. nóvember ef framleiðandi óskar eftir álagsgreiðslum fyrir næsta almanaksár.

Námskeið
Eitt af grunnskilyrðum fyrir þátttöku í gæðastýringu í sauðfjárrækt er að hafa sótt undirbúningsnámskeið.

Fyrirhugað er að halda námskeið á eftirtöldum stöðum:
Stóra Ármóti, mánudaginn 14. júní.
Hvanneyri, þriðjudaginn 15. júní.
og einhvers staðar á Norðurlandi/Austurlandi, föstudaginn 18. júní.

Námskeiðin hefjast kl. 10.00 fyrir hádegi og þeim lýkur kl. 18.00.

Námskeiðin eru ætluð þeim framleiðendum sauðfjárafurða sem:
- eru nýir þátttakendur og/eða hafa ekki sótt námskeið áður
- eru nýir ábúendur eða eigendur jarða, - eru að hefja sauðfjárbúskap, taka við sauðfjárbúi eða gera það síðar á þessu ári eða því næsta.

Skráning
Þeir sem óska eftir að sækja fyrirhuguð námskeið eru vinsamlegast beðnir að skrá þátttöku til Bændasamtaka Íslands fyrir 7. júní. Unnt er að skrá þátttöku í síma 563-0300 eða á tölvupósti bella@bondi.is

Bændasamtök Íslands

Til baka

Leturstærðir


Leit og innskráning

  • English
  • Vefpóstur bondi@bondi.is
Leitarvél

Bændatorg

Bændatorg



Gleymt lykilorð?
Nýr notandi
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi